Sumarfrí

Síðasti opnunardagur skrifstofu skólans er þriðjudagurinn 24. júní. Skrifstofan opnar aftur 6. ágúst kl. 10.

Skólastarf haustannar hefst með móttöku nýnema föstudaginn 22. ágúst kl. 10-13. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá mánudaginn 25. ágúst. Stundatöflur verða aðgengilegar í Innu fyrir upphaf kennslu og fá nemendur og forsjárfólk póst þegar stundatöflur eru tilbúnar og opnað hefur verið fyrir töflubreytingar.

Námsgagnalisti er aðgengilegur á heimasíðu skólans og er ætlast til að nemendur útvegi námsgögn þegar þeir hafa fengið stundatöflur haustannar. Nemendur og forsjárfólk nemenda undir 18 ára hafa aðgang að kennslukerfinu Innu en nota þarf rafræn skilríki til að skrá sig inn. Í Innu er haldið utan um nám nemenda, einkunnir og viðveru.

Innritun á haustönn er lokið og skólinn fullsetinn. Fyrirspurnir er hægt að senda á msund@msund.is en öllum erindum verður svarað í ágúst.

Gleðilegt sumar!