Sigurvegari Baulunnar 2026

Maja Margrét, sigurvegari Baulunnar 2026
Maja Margrét, sigurvegari Baulunnar 2026

Söngvakeppnin Baulan var haldin í Gamla bíó fimmtudaginn 22. janúar. Í keppnina voru skráð 7 atriði, hvert öðru glæsilegra. Dómnefnd skipuðu Jóna Margrét, Guðjón Smári og Gugga í gúmmíbát og foreldraráð skólans gaf vinninga.

Sigurvegari að þessu sinni var Maja Margrét með lagið Die on this hill með Sienna Spiro. Maja verður því fulltrúi skólans í Söngvakeppni framhaldsskólanna 2026. Í öðru sæti var Ína Andradóttir og í þriðja sæti Arnór Orri.

Til hamingju kæru Maja, Ína og Arnór Orri!