MS-ingar fá styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands

Tveir fyrrverandi nemendur Menntaskólans við Sund fengu í ár styrk úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands. Styrkir eru veittir nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum.

Styrkþegar eru Ásta Fanney Hreiðarsdóttir og Thanawin Yodsurang. Við óskum þeim innilega til hamingju!

Nánari upplýsingar um verðlaunin og verðlaunahafana eru á vef Háskóla Íslands.