Fardagur og dimmisjón

Það er alltaf ljúfsár tími á vorin þegar útskriftarnemar kveðja skólann sinn. Á fardegi ríkti hátíðleg stemning í Menntaskólanum við Sund þegar útskriftarnemar mættu prúðbúnir í skólann sinn á síðasta kennsludegi vorannar. Á kveðjuathöfn í sal skólans fluttu fulltrúar nemenda ræður þar sem þeir litu um öxl og kvöddu skólann með hlýju, húmor og þakklæti.

Í ræðunum var dregin upp mynd af árum sem einkenndust ekki aðeins af námi og verkefnum, heldur einnig vináttu, samstöðu og óteljandi minningum. Nemendur lýstu samhug í gegnum krefjandi áfanga og líflegt félagslíf sem gerði skólann að öðru heimili. Þakklæti var ríkjandi – til samnemenda, kennara og starfsfólks.

Sigurjón Nói Ríkharðsson, sem flutti ræðu fyrir hönd útskriftaráðs, fangaði vel þær tilfinningar sem fylgja því að kveðja stóran kafla í lífinu. Hann minnti á að þó náminu væri lokið væru það minningarnar, vináttan og reynslan sem lifðu áfram.

Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir af LE-línu ræddi mikilvægi þakklætis og hvernig námið, félagslífið og stuðningur kennara og starfsfólks hafi mótað skólagönguna. Hún lagði áherslu á að það sem standi eftir séu tengslin, reynslan og lærdómurinn sem fylgir því að standa saman.

Róbert Þór Sigurðsson, fulltrúi ES-línunnar, lýsti hvernig hópurinn stóð þétt saman í gegnum ýmsar áskoranir, þar á meðal átta stærðfræðiáfanga og fimm í eðlisfræði. Samstaða, vinátta og góðar minningar voru honum ofarlega í huga.

Ásgeir Máni Andrason af HS-línu lýsti því að erfitt væri að kveðja Höllina í Gnoðarvoginum, en hvatti jafnframt alla til að njóta síðustu daganna saman og skapa eftirminnilegar stundir.

Vigdís Elísabet Bjarnadóttir minntist FS-línunnar og þeirra fjölmörgu félagsfræði- og söguáfanga sem hún og samnemendur höfðu lagt stund á. Hún þakkaði bæði kennurum og samnemendum og lýsti yfir ánægju með þann tíma sem hún dvaldi í MS.

Ketill Ágústsson, fráfarandi ármaður SMS, flutti lokaræðu þar sem hann þakkaði nemendum fyrir samfylgdina. Að lokum æfðu útskriftarnemar skólasöng MS, sem mun óma við útskriftarathöfnina í Háskólabíó þann 31. maí.

Föstudaginn 23. maí var svo haldin dimmisjón, og hófst dagurinn á sameiginlegum morgunverði í skólanum – frábær dagur í alla staði.

Við þökkum útskriftarnemum fyrir frábæra samveru í MS og óskum þeim velfarnaðar í næstu verkefnum.