Brautskráning stúdenta 31. maí 2025

Í dag brautskráðust 194 stúdentar frá Menntaskólanum við Sund við hátíðlega athöfn í Háskólabíó. Nemendur útskrifuðust af tveimur námsbrautum: náttúrufræðibraut og félagsfræðabraut. Af náttúrufræðibraut brautskráðust 73 nemendur, þar af 52 af líffræði- og efnafræðilínu og 21 af eðlisfræði- og stærðfræðilínu. Af félagsfræðabraut brautskráðust 121 nemandi, 45 af félagsfræði- og sögulínu og 76 af hagfræði- og stærðfræðilínu.

Dúx skólans að þessu sinni var Amelía Rós Gilsdorf, nýstúdent af félagsfræði- og sögulínu, með meðaleinkunn 9,46. Semídúx var Matthilda Ósk Ólafsdóttir, einnig af félagsfræði- og sögulínu, með meðaleinkunn 9,28. Við óskum þeim og öllum nýstúdentum innilega til hamingju með frábæran árangur!

Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor skólans, flutti ávarp þar sem hún hrósaði útskriftarhópnum fyrir fjörugt og hugmyndarík framlag til skólasamfélagsins. Hún sagði hópinn samanstanda af tónlistarfólki, íþróttafólki, leikurum, söngvurum, skemmtikröftum, ræðufólki, upprennandi vísindafólki og framtíðarfrumkvöðlum og sagði hópinn hafi markað djúp spor í skólalífið.

Rektor þakkaði starfsfólki og kennurum sérstaklega fyrir þá miklu alúð sem þau leggja í sitt starf til þess að koma nemendum á leiðarenda og minnti nemendur einnig á að þakka foreldrum sínum og forráðafólki fyrir stuðninginn á námsárum. Bakland aðstandenda væri dýrmætt og því miður ekki alltaf sjálfsagt.

Í lok ávarps síns hvatti rektor nýstúdenta til að velta fyrir sér hvaða tré þau vilji gróðursetja í samfélaginu – í anda orða bengalska skáldsins Tagore: „Sá sem gróðursetur tré, vitandi að hann mun aldrei sitja í skugga þess, hefur að minnsta kosti byrjað að skilja merkingu lífsins.“

Rektor sagði orðin endurspegla velferðarsamfélagið - lífið snýst ekki bara um okkur sjálf, að ná árangri eða klífa metorðastigann, heldur snýst það um að gefa af sér, að skapa eitthvað sem þjónar öðrum, jafnvel löngu eftir að við sjálf erum horfin á braut. Rektor bauð svo nýstúdentum að setja upp hvíta hattinn, tákn stúdentsins.

Agla Rut Egilsdóttir, nýstúdent af LE-línu, flutti ræðu fyrir hönd nýstúdenta. Hún minntist menntaskólaáranna með hlýju og sagði skólann hafa kennt nemendum margt – allt frá nýjum tungumálum og stærðfræði til rannsóknavinnu og ritgerðaskrifa. En ekki síst hefðu nýstúdentarnir lært á lífið, að vera sjálfum sér trú, finna sína eigin leið og sitt fólk. Þau hefðu hafið skólagönguna sem óskrifað blað, en við útskrift væri blaðið orðið ríkulega skreytt. Þótt útskriftin marki endalok ákveðins kafla, sagði Agla MS ætíð eiga stað í hjörtum þeirra og fyrir hönd hópsins sagðist hún kveðja skólann með þakklæti og stolti.

Stefán Jón Hafstein, fulltrúi 50 ára stúdenta, flutti einnig ávarp þar sem hann lýsti breytingum í samfélaginu síðan hann lauk stúdentsprófi og ýmsum vandamálum sem mannkynið stæði nú frammi fyrir. Framtíðin væri í höndum nýstúdenta og hún væri björt með þau í fararbroddi. Í tilefni útskriftarafmælisins veitti útskriftarárgangur 50 ára stúdenta rausnarlegan styrk í Styrktarsjóðs Menntaskólans við Sund.

MS á sterka bakhjarla meðal fyrrverandi nemenda skólans. Auk Styrktarsjóðs Menntaskólans við Sund er til Minningarsjóður Björns Bjarnasonar og Tjarnarsjóðurinn, en þessir sjóðir styðja skólann og nemendur hans með ýmsum hætti.

Við brautskráningu vorið 2025 veitti Tjarnarsjóðurinn Málfundarfélagi SMS 200.000 króna styrk fyrir þjálfun Morfís-liðsins og uppbyggingu félagsins. Í vetur náði Morfís-liðið í úrslit og í kringum keppnina myndaðist sterkur liðsandi sem styrkti skólasamfélagið og efldi skólabrag. Styrkurinn mun nýtast til að greiða þjálfurum og efla áframhaldandi starf félagsins.

Kór starfsfólks flutti skólasöng Menntaskólans við Sund og stúdentasönginn, Gaudeamus Igitur, við undirleik Arngerðar Maríu Árnadóttur píanóleikara. Athöfninni lauk með tónlistaratriði þar sem Ketill Ágústsson, nýstúdent og fráfarandi ármaður SMS, flutti lagið Fallegur dagur eftir Bubba Morthens sem var viðeigandi endir á fallegri athöfn.

Við óskum öllum nýstúdentum og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með þennan merka áfanga og þökkum þeim góð kynni og ánægjulegt samstarf í MS.

 

Myndir tók Sigurjón Ragnar srphotos.