Tölum saman í MS

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, efnir til samtals laugardaginn 10. október um allt land. Menntaskólinn við Sund er staðarhaldari í verkefninu og eru nemendur ásamt forráðafólki hvattir til að mæta og taka þátt í samtalinu. Húsið opnar kl. 13:30 og hefst samtalið kl. 14:00.

Skráning fer fram á þessum hlekk: https://talasaman.is/

Samtal byggir á þeirri hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina.

Ungt fólk leiðir samtalið en þeim sem yngri og eldri eru, er boðið að taka þátt, til að skapa raunverulegt samtal kynslóða. Um allt land mun fólk hittast, hlusta hvert á annað og deila því sem skiptir okkur máli: vonum okkar, gildum og hugmyndum um framtíðina.

Lesa má nánar um verkefnið á vefsíðunni talasaman.is