Opið hús á starfsbraut

 

Opið hús á starfsbraut fyrir nemendur í 10. bekk verður mánudaginn 26. janúar kl. 14-16. Opna húsið er sérstaklega ætlað væntanlegum umsækjendum um nám haustið 2026 og aðstandendum þeirra.

Á opnu húsi gefst gestum tækifæri til að kynna sér nám á brautinni, aðstöðu og ræða við starfsfólk.

Nánari upplýsingar um starfsbraut MS HÉR.