Kynningar fyrir nemendur í 10. bekk

Í apríl verða haldnar kynningar fyrir nemendur í 10. bekk á námsframboði og skipulag námsins í MS. Að auki segja nemendur úr stjórn SMS frá félagslífinu.

Kynningarnar verða haldnar á eftirfarandi dagsetningum:

  • Fimmtudagur 9. apríl kl. 15-16
  • Mánudagur 13. apríl kl. 15-16

Skráning er nauðsynleg og takmarkað sætapláss á hverri kynningu. Því miður getum við ekki tekið á móti forsjárfólki á þessar kynningar en þann 18. mars kl. 15-17 verður opið hús í MS fyrir gesti og gangandi þar sem öll eru velkomin.

Skráning hefst hér á síðunni þann 16. mars kl. 12:00.