Lágmarkskröfur um námsframvindu innan skólaárs

Nemandi þarf að ljúka að lágmarki 10 einingum á önn en þó ekki færri en 40 einingum á skólaárinu. Ef nemandi lýkur færri einingum þarf hann að sækja sérstaklega um að halda áfram í fullu námi við skólann. Fyrst þarf nemandinn að ræða við námsráðgjafa og síðan að fylla út sérstakt eyðublað með ósk um áframhaldandi nám.

Nemandi sem ekki uppfyllir lágmarksskilyrði í tilteknum áfanga þarf að endurtaka áfangann ef hann er skylduáfangi en ef svo er ekki hefur hann möguleika á að ljúka öðrum sambærilegum áfanga vilji hann það frekar. Í öllum slíkum tilvikum þarf nemandinn að fá staðfestingu skólans á því hvort áfanginn teljist sambærilegur með tilliti til sérsviðs, hæfniþreps og svo framvegis.

Áhrif slakrar ástundunar á námsframvindu

Skólinn setur ákveðnar reglur um áhrif slakrar ástundunar á námsframvindu. Sjá hér reglur um skólasókn.