Útlán og safnkostur

Aðföng safnsins

Efni sem berst safninu er skráð jafnóðum í Gegni

Útlán

Almennt eru bækur (ekki kennslubækur) safnsins er lánaðar 30 daga í senn með möguleika á framlengingu eftir þörfum (nema þegar liggur fyrir pöntun á efninu). DVD diskar eru lánaðir í 7 daga. Spjaldtölvur er einungis lánaðar til nota í viðkomandi kennslustund.

Kennslubækur, vasareiknar, hleðslutæki fyrir fartölvur og síma, og ritföng eru lánuð út af skrifstofu skólans.

Bækur

Á safninu er yfirgripsmikið safn íslenskra bóka og bóka á kennslumálum skólans eða um 12.000 bindi bóka. Nýtt efni berst reglulega. Bókakostur safnsins er mjög fjölbreyttur. Þar er meðal annars að finna handbækur, orðabækur, skáldrit og fræðibækur.

Myndefni

Safnið hefur að geyma fjölbreytt úrval mynddiska sem notaðir eru við kennslu og stendur nemendum og kennurum til afnota.

Rafrænt efni

Bókasafnið er áskrifandi að rafrænu efni, til dæmis að Landsaðgangi að rafrænum áskriftum og Snara.is

Stafræn framleiðsla

Þrívíddarprentari, vínilskeri og hitapressa eru nýjasta viðbót skólans og hluti af þeirri breytingu sem orðin er á Viskusteini.

 

Síðast uppfært: 01.03.2022