Orðabækur á netinu og á prentuðu formi

Á bókasafninu er gott safn orðabóka á prentuðu formi.

Menntaskólinn við Sund er með aðgang að Snöru. Aðgangur er veittur frá staðarneti skólanna. Nemendur sem þurfa aðgang heim fá ársaðgang á aðeins 990 kr. Nemendur þurfa skrá sig inn á Snöru með sömu innskráningaraðferð og vefpóstur viðkomandi skóla notar.

Snara.is geymir yfir tvær milljónir uppflettiorða í tugum orðabóka og uppflettirita, alls 34. Nota má samþætta leit þar sem leitað er í öllum uppflettiritunum eða leita í hverjum efnisflokki eða riti um sig.

Orðasöfn í opnum aðgangi

Í opnum ókeypis aðgangi er ýmis gagnleg orðasöfn að finna. Má til dæmis nefna eftirfarandi:

ISLEX er margmála veforðabók þar sem íslenska er viðfangsmálið og markmálin eru danska, sænska, norskt bókmál, nýnorska og færeyska.

Málið.is er leitargátt hjá Stofnun Árna Magnússonar fyrir nokkur gagnasöfn um íslensku. Gagnasöfnin eru beygingalýsing íslensks nútímamáls (BÍN), íslenska stafsetningarorðabókin, orðabók íslensks nútímamáls, íslenskt orðanet, málfarsbankinn, íðorðabankinn og íslensk orðsifjabók. Með leitargáttinni er hægt að leita samtímis í öllum þessum gagnasöfnum, sjá www.malid.is

Orðabanki Íslenskrar málstöðvar
Í orðabankanum eru m.a. íslensk íðorð (fræðiorð) og nýyrði úr almennu máli, auk þess íslenskar þýðingar á erlendum íðorðum og hugtakaskilgreiningar íðorða á íslensku og fleiri tungumálum.

Ritmálssafn Orðabókar Háskólans
Þar er safnað heimildum um orð og orðanotkun í íslensku frá upphafi prentaldar um 1540 til samtímans. Gagnasafn Orðabókarinnar, sem er aðgengilegt almenningi, geymir það efni sem þegar hefur verið tölvuskráð.

Táknmálsorðabók er þekkingarbrunnur fyrir íslenskt táknmál í vef og farsíma. Þar er að finna um 9.000 tákn. Útgefandi Samskiptamiðstöð, sjá www.signwiki.is

Sjá fleiri orðabækur í opnum aðgangi hjá Landsaðgangi að rafrænum áskriftum, orðabækur, hér.

Síðast uppfært: 06.10.2022