MENF2MK05 – Menningarkimar

Samfara því að skoða hvers kyns listsköpun verða kannaðir ýmsir menningarkimar, einkum hér á landi. Í áfanganum er krafist mjög sjálfstæðra vinnubragða og mikil áhersla er lögð á notkun nútímatækni.

Þekkingarviðmið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • vel völdum menningarkimum samtímans
  • mismunandi birtingarmyndum listsköpunar
  • mismunandi straumum og stefnum í listum

Leikniviðmið
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina ólíka menningarkima og listgreinar
  • draga eigin ályktanir af menningarlegum gildum og viðmiðum
  • vera þátttakandi í menningarlífi og gera sér grein fyrir því hvað menningarstarf getur verið þroskandi fyrir einstaklinginn og veitt honum mikla lífsfyllingu
  • endursegja og túlka upplifun sína á listviðburðum

Hæfniviðmið
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • greina afmarkaða þætti í menningarsögu
  • geta sett þekkingu sína í menningarsögu og listum í fræðilegt samhengi og miðlað henni áfram í ræðu og riti
  • njóta mismunandi listsköpunar og menningarkima