Mötuneyti

Fyrirtækið Krúska rekur mötuneyti MS. sem staðsett er í nýju glæsilegu húsnæði. Salurinn tekur um 300 manns í sæti í hádeginu en mötuneytið opnar klukkan 8:10 á morgnana og er opið fram undir klukkan 14:00 alla virka daga. Salurinn er hins vegar opinn nemendum frá klukkan 8-16 alla virka daga. 

Maturinn

Stök heit máltíð kostar kr. 1150.- en hægt er að kaupa klippikort á kr. 10000.- fyrir 10 máltíðir. 

Auk heitra máltíða eru seldar samlokur,vefjur, jógúrt, drykkir og hollustusnakk.

Ekki eru notaðar hnetur við matargerð í MS.

Til að borga fyrir 10 skipta matarkort má leggja inn á reikning mötuneytis:
Kt: 520808-0270, reikningur 0513-26-9235.

Það þarf að senda sms með nafni nemanda í síma 8226262. 

Kortið fæst þá afhent í mötuneyti skólans. Einnig er hægt að kaupa kort í mötuneytinu.

Heitur matur er framreiddur alla daga frá kl.11:30 – 12:30.

Hafragrautur er framreiddur alla daga frá kl. 09:20 – 09:40.

Kveðja Guðrún á Krúsku


Markmiðið mötuneytisins í Menntaskólanum við Sund er að:

•maturinn sé hollur og næringarríkur og henti ungmennum og fullorðnum vel

•fá nemendur og starfsfólk til að borða hollan mat

•kynna nemendum og starfsfólki fyrir fjölbreyttum mat og matargerð

•við afgreiðslu matar séu nemendur og starfsfólk hvatt til að smakka á mat sem er þeim framandi

•kynna fjölbreyttar tegundir grænmetis og grænmetisrétta fyrir nemendum og starfsfólki



Síðast uppfært: 01.02.2023
Undirsíður:
Matseðill