Eldri fréttir
Jöfnunarstyrkur 2010-2011 3. september 2010 ... Meira >>>
Gjaldskrá Menntaskólans við Sund 3. september 2010 Gjaldskrá Menntaskólans við Sund skólaárið 2010-2011 hefur verið birt hér á vefnum [skoða] Meira >>>
Esjugangan gekk vel 3. september 2010 Foreldrafélag skólans stóð fyrir göngu á Esju í gær og tókst hún vel. Færir skólinn foreldrafélaginu þakkir fyrir framtakið. Meira >>>
Busadagur 31. ágúst 2010 Busadagur verður á morgun 1. september. Meira >>>
Esjuganga Foreldrafélags MS 30. ágúst 2010 Foreldrafélag Menntaskólans við Sund stendur fyrir gönguferð á Esjuna fimmtudaginn 2. september kl. 18:00. Hópurinn leggur af stað frá Esjustofu. Foreldrar, nemendur og kennarar velkomnir. Meira >>>
Upphaf skólaárs og skólasetning 23. ágúst 2010 Nýnemar eru boðaðir á fund í skólanum þriðjudaginn 24. ágúst klukkan 15. Skólasetning verður miðvikudaginn 25. ágúst klukkan 9:00 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá strax að lokinni setningu. Meira >>>
Stundatöflur haustannar 2010 20. ágúst 2010 Stundatöflur eru nú komnar inn í Innu. Meira >>>
Bekkjarlistar 10. ágúst 2010 Bekkjarlistar eru nú tilbúnir, sjá hér á síðunni, undir Skólinn. Meira >>>
Dagatal 2010-2011 29. júní 2010 Rammi að dagatali skólaárið 2010-2011 er kominn á vefinn [skoða] Meira >>>
Bókalistar 2010-2011 28. júní 2010 Búið er að setja á heimasíðuna bókalista næsta skólaárs (2010-2011). Listinn er birtur með fyrirvara um breytingar [skoða bókalistann] Meira >>>
Skrifstofan lokar vegna sumarfría 25. júní 2010 Skrifstofa Menntaskólans við Sund verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með mánudeginum 28. júní og til og með föstudagsins 6. ágúst næstkomandi. Meira >>>
Bréf send út til nýnema 23. júní 2010 Úrvinnslu á umsóknum nýnema um skólavist í Menntaskólann við Sund er lokið. Verið er að ganga frá bréfi til nemanda og forráðamanns þar sem tilkynnt verður að viðkomandi nemandi hafi fengið skólavist næsta skólaár. Nemendur staðfesta síðan umsókn sína með því að greiða skólagjöldin fyrir eindaga. Meira >>>
Innritun nýnema - staða mála 16. júní 2010 Þessa dagana er unnið að innritun nýnema í framhaldsskóla landsins. Unnið er samkvæmt nýju fyrirkomulagi þar sem nemendur velja þann skóla sem þeir helst vilja fara í og einn til vara. Skólarnir vinna úr þessum umsóknum og raða nemendum eftir stöðu þeirra. Það voru 615 nemendur sem völdu MS þar af völdu félagsfræðabraut 323 og náttúrufræðibraut 292.... Meira >>>
Greiðsla skólagjalda eldri nemenda 10. júní 2010 Greiðsluseðlar vegna skólagjalda fyrir skólaárið 2010-2011 hafa verið sendir til eldri nemenda. Vinsamlegast greiðið á eindaga til að tryggja ykkur skólavist næsta vetur. Meira >>>
Brautskráning stúdenta 29.05.2010 2. júní 2010 Brautskráning stúdenta fór fram í Háskólabíói laugardaginn 29. maí. Að þessu sinni voru 125 nemendur brautskráðir. Af málabraut voru brautskráðir 14 nemendur. Af félagsfræðabraut 58 nemendur og af náttúrufræðibraut 53 nemendur. Í útskriftarhópnum voru 54 piltar en 71 stúlka. Með hæstu einkunn (Dúx) á stúdentsprófi að þessu sinni var... Meira >>>
Einkunnir úr endurtökuprófum 2. júní 2010 Ný einkunnablöð vegna niðurstaðna úr endurtökuprófum verða afhent á skrifstofu MS mánudaginn 7. júní kl. 12:30. Nemendur eru hvattir til að koma og sækja nýju einkunnablöðin. Meira >>>
Endurtökupróf í 1. - 3. bekk 26. maí 2010 Endurtökupróf í 1. - 3. bekk verða haldin 1. og 2. júní. Nemendur sem hafa náð 5 í aðaleinkunn en eru undir lágmarki í einni eða tveimur námsgreinum eiga að mæta í endurtökupróf. Nemendum er bent á að hafa samband við skrifstofuna ef þeir eru í vafa um hvort þeir séu skráðir í próf. Nemendur geta skoðað próftöflu endurtökuprófa hér á síðunni, undir Námið, sjá Endurtökupróf í júní 2010. Meira >>>
Einkunnaafhending og prófsýning 14. maí 2010 Einkunnir í 1. -3. bekk verða afhentar föstudaginn 21. maí kl. 12:00. Prófsýning hefst strax að lokinni einkunnaafhendingu og stendur hún til klukkan 13:45. Einkunnir í 4. bekk verða afhentar föstudaginn 21. maí kl. 14:00 og prófsýning, sem hefst að lokinni einkunnaafhendingu, stendur til klukkan 15:00. Meira >>>
FLORA ISLANDICA - JURT MAÍ MÁNAÐAR 4. maí 2010 Jurt maí mánaðar er Vetrarblóm, Saxifraga oppositifolia. Þessi litla harðgerða planta er einna fyrst allra til að blómsta innan um fannir og skafla. Í Flora islandica segir svo um þennan vorboða. Stönglarnir eru jarðlægir og hálftrénaðir með stuttum uppsveigðum blómstönglum. Blöðin eru gisstæð á jarðlæga stönglinum en mjög þéttstæð á blómstönglunum... Meira >>>
Fyrirtækjamiðjan: Frábær árangur MS 3. maí 2010 Nemendur í hagfræði við Menntaskólann við Sund, undir stjórn Ingibjargar Þormar, náðu frábærum árangri á uppskeruhátíð Fyrirtækjasmiðjunnar. Stúlkur í 3. G fengu verðlaun fyrir bestu viðskiptaáætlunina og kynningu 2010 og fyrr í vor fengu piltar í 3. G viðurkenningu fyrir besta básinn og framkomu á Vörumessunni í Smáralind fyrir nokkru. Meira >>>
Próf hefjast 3. maí klukkan 9:00 28. apríl 2010 Próftöfluna er að finna heimasíðunni sem og reglur um próf. Nemendum er bent á að kynna sér prófreglur og próftöfluna vel. Próftaflan. Reglur um próf. Meira >>>
Stórtónleikar í Lindakirkju 16. og 17. apríl, 2010 14. apríl 2010 Vopnaði Maðurinn eftir Karl Jenkins. Stórtónleikar í Lindakirkju 16. og 17. apríl, 2010. Samkór Kópavogs – Tónlistarskóli Kópavogs – Tónlistarskóli Hafnarfjarðar Tónskóli Sigursveins D. Kristinssonar Samkór Kópavogs og Kór Menntaskólans við Sund í samvinnu við nemendur og kennara úr Tónlistarskóla Kópavogs, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og Tónskóla... Meira >>>
Valgreinar í boði 2010-2011 12. mars 2010 Lýsingar á valgreinum sem í boði verða 2010-2011 er nú að finna á heimasíðunni. Valgreinaval nemenda á 2. og 3. námsári fer fram á Námsnetinu 19. mars til 9. apríl. Valgreinalýsingar Meira >>>
FLORA ISLANDICA - JURT MARS MÁNAÐAR 10. mars 2010 Þórdís T. Þórarinsdóttir forstöðumaður bókasafns MS hefur valið jurt marsmánaðar. Fyrir valinu varð Eyrarrós (Chamerion latifolium). Hún er nú til sýnis í bókinni Flora islandica á annarri hæð framan við skrifstofu skólans. Í Flora islandica segir svo um Eyrarrós: Upp af jarðstöngli vaxa margir, smádúnhærðir og blaðmargir stönglar. Blöðin... Meira >>>
Kjörsviðsverkefni - lokaskil 8. mars 2010 Nemendur í 4. bekk Skiladagur lokaafurðar kjörsviðsverkefnis í 4. bekk er 19. mars 2010. Konrektor Meira >>>
Kjörsviðsval 25. febrúar 2010 Kjörsviðsval nemenda í 1. og 2. bekk, val á fjórða tungumáli í 1. bekk málabrautar og staðfesting á vali á þriðja tungumáli í 1. bekk félagsfræða- og náttúrufræðibrautar fer fram vikuna 1. til 5. mars. Konrektor mun ganga í bekki og nemendur fylla út eyðublað til staðfestingar á vali sínu. Sjá kynningar á kjörsviðum brauta hér hægra megin... Meira >>>
Þemadagur MS og árshátíð SMS 12. febrúar 2010 Miðvikudaginn 17. febrúar verður skólastarf brotið upp og munu ýmsir gestir koma í heimsókn í skólann. Nemendur fá þá tækifæri til að taka þátt í skapandi starfi (dans, jóga, prjóna, myndlist), umræðum um stjórnmál, hlusta á skáld lesa úr verkum sínum, fræðast um alþjóðleg hjálpar- og björgunarstörf og hlusta á tónlist. Sjá dagskrá hér neðar á... Meira >>>
Innritun fyrir haustönn 2010 5. febrúar 2010 Í hvaða framhaldsskólum eiga grunnskólanemar forgang? Nemendur sem eru að ljúka grunnskóla eiga rétt á skólavist í framhaldsskóla. Því er nemendum í tilteknum grunnskólum tryggður forgangur að skólavist í ákveðnum framhaldsskólum með hliðsjón af nágrenni við skóla, hefðum og samgöngum. Meðfylgjandi listi sýnir í hvaða framhaldsskólum nemendur einstakra... Meira >>>
Samstarf við Vogaskóla á degi stærðfræðinnar 5. febrúar 2010
Dagur stærðfræðinnar er í dag. Af því tilefni undirbjuggu Vogaskóli og Menntaskólinn við Sund samstarfsverkefni nemenda og komu áttundu bekkingar úr Vogaskóla hingað í MS í morgun. Nemendur í 2. S og hluti nemenda í 1. E tóku á móti Vogaskólakrökkum. Skipt var í hópa og voru ýmist... Meira >>>
FLORA ISLANDICA - jurt mánaðarins 4. febrúar 2010 Bókin FLORA ISLANDICA er eitt glæsilegasta rit sem komið hefur út hér á landi í langan tíma. Myndir í bókinni eru eftir Eggert Pétursson listmálara og stúdent frá MT en textinn er eftir Ágúst H. Bjarnason grasafræðing og fyrrum kennara við MS. FLORA ISLANDICA er nú aðgengileg nemendum... Meira >>>
Kynjaskipting starfa í MS 27. janúar 2010 Upplýsingar um kynjaskiptingu starfa í MS skólaárið 2009-2010 eru nú aðgengilegar hér á vef skólans [skoða] Meira >>>
Jöfnunarstyrkur 26. janúar 2010 Umsóknarfrestur um jöfnunarstyrk frá LÍN á vorönn 2010 er 15. febrúar. Meira >>>
Foreldrafundur 1. bekk 12. janúar 2010 Fundur verður haldinn með foreldrum og forráðamönnum nemenda í 1. bekk þriðjudaginn 19. janúar kl. 19:45-21:45. Tilgangur fundarins er að efla samstarf forráðamanna og skólans, skýra námsframboð í skólanum og fara yfir stöðu mála barna ykkar. Á fundinum fjalla sviðstjórar um kjörsviðsval nemenda og umsjónarkennarar ræða um námsárangur á haustönn og... Meira >>>
Velkomin til starfa 8. janúar 2010 Velkomin til starfa á vorönn 2010. Nú er mikilvægt að byrja strax af fullum krafti í náminu og hafa hugfast að góð mæting, virkni í kennslustundum og heimanám er lykillinn að góðum námsárangri. Gangi ykkur vel. Meira >>>
Stundatöflur vorannar 2010 29. desember 2009 Stundatöflur vorannar 2010 eru nú komnar á heimasíðu MS undir Námið - Stundatöflur. Meira >>>
Opnunartímar skrifstofu síðustu daga í desember 21. desember 2009 ... Meira >>>
Lok haustannar - afhending einkunna 17. desember 2009 Lok haustannar 2009 er föstudaginn 18. desember klukkan 12:30. Dagskráin er þannig að það verður stutt athöfn á sal skólans og nemendur fá einkunnir sínar og geta skoðað prófúrlausnir. Meira >>>
Ráð um prófaundirbúning og próftöku 30. nóvember 2009 Haustannarpróf 2009 hefjast fimmtudaginn 3. desember kl. 9:00. Nemendum er bent á að góð ráð er að finna á heimasíðu MS bæði um prófaundirbúninginn og próftökuna sjálfa. Þar er einnig að finna prófreglur sem mikilvægt er að nemendur kynni sér. Gangi ykkur vel. Sjá krækjur hér að neðan eða undir Námið - Reglur um próf. Ráð... Meira >>>
Myndir frá lestrarátaki á Degi íslenskrar tungu 20. nóvember 2009 Í meðfylgjandi skjali eru myndir frá lestraráakinu á Degi íslenskrar tungu. Sækja... Meira >>>
Dagur íslenskrar tungu 12. nóvember 2009 Mánudagurinn 16. nóvember er dagur íslenskrar tungu. Hann er haldinn hátíðlegur ár hvert en það er afmælisdagur skáldsins Jónasar Hallgrímssonar. Þá ætlum við að öll, nemendur og kennarar MS að lesa skáldrit á íslensku frá kl. 10:30-11:10. Við leggjum niður hefðbundið starf og setjumst niður og lesum, ekki hinar hefðbundnu kennslubækur... Meira >>>
Fræðslu- og aðalfundur foreldrafélags MS 9. nóvember 2009 Stjórn foreldrafélags Menntaskólans við Sund boðar til fræðslu- og aðalfundar félagsins þriðjudaginn 17. nóvember kl. 20:00 í stofum 13 og 14 í MS.
Meira >>>
Nemendakönnun 8. nóvember 2009 Opnað hefur verið nemendakönnun á Námsnetinu. Með þessari könnun gefst öllum nemendum Menntaskólans við Sund kostur á að meta gæði náms og kennslu í skólanum og leggja sitt af mörkum til að bæta skólastarfið. Ekki verður hægt að rekja svör til einstakra nemenda því þessi hluti Námsnetsins er byggður þannig upp að aðeins er hægt að sjá heildarniðurstöðu... Meira >>>
Um aukatíma á haustönn 6. nóvember 2009 Menntaskólinn við Sund mun ekki bjóða nemendum upp á aukatíma á haustönn 2009. Nemendum, sem telja sig þurfa á aukatímum að halda, er bent á að aukatímar eru víða í boði. Upplýsingar um kennara sem taka nemendur í einkatíma eru m.a. á töflum framan við skrifstofur námsráðgjafa. Einnig býður fyrirtækið Study.is... Meira >>>
Próftafla haustannarprófa 2009 30. október 2009
Meira >>>
Mat á lotunámi 29. október 2009 Nú stendur yfir könnun á Námsnetinu fyrir nemendur í 1. bekk félagsfræðabrautar um mat á tilraun um lotunám í félagsfræði, ensku og jarðfræði. Við þökkum þeim nemendum sem nú þegar hafa svarað könnuninni kærlega fyrir þátttökuna og biðjum þá sem eiga það eftir vinsamlegast að gera það fyrir 30. október. Meira >>>
Tímabundin breyting á skil á vottorðum 21. október 2009 Læknisvottorð vegna veikinda nemenda 18 ára eða eldri. Um þessar mundir er mikið álag á heilsugæslustöðvar vegna inflúensufaraldurs. Starfsfólk heilsugæslustöðva á því tímabundið erfitt með að sinna útgáfu læknisvottorða. Frá og með 15. október geta foreldrar staðfest veikindi nemenda sem eru 18 ára eða eldri. Þetta gildir tímabundið ... Meira >>>
Haustfrí í MS 16. október 15. október 2009 Skólinn verður lokaður föstudaginn 16. október vegna haustfrís nemenda og starfsmanna skólans. Meira >>>
Frestur til að sækja um jöfnunarstyrk rennur út í dag 15. október 2009 Eftirfarandi auglýsing barst frá Lánasjóði íslenskra námsmanna með ábendingu um að fresturinn til að sækja um styrk rennur út í dag þann 15. október. Jöfnunarstyrkur Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á www.lin.is Hægt er að skrá umsókn á Innu eða... Meira >>>
Myndasöguhöfundurinn Line Hoven í MS 15. október 2009 Þriðudaginn 13. október stýrði myndasöguhöfundurinn Line Hoven myndasögusmiðjufyrir valáfanga í lífsleikni í MS. Þar kynnti hún sérstaka tækni sem hún notar við myndasögugerð og nemendur spreyttu sig við myndlistina og varð vel ágengt. Meira >>>
Stöðumat í 1. og 2. bekk og sjálfsmat nemenda í 2. bekk 9. október 2009 Vikuna 5. til 9. október fer fram stöðumat nemenda í 1. og 2. bekk þar sem kennarar leggja mat á námsstöðu nemenda í hverri námsgrein. Á sama tíma fer fram sjálfsmat nemenda í 2. bekk þar sem þeir leggja mat á námsstöðu sína í hverri grein. Umsjónarkennarar afhenda stöðumatið til nemenda í frá 13. til 15. október og einnig verður það sent heim til forráðamanna... Meira >>>
40 ár frá því skólinn hóf störf 1. október 2009 Menntaskólinn við Sund er í dag, 1. október 2009 40 ára. Þennan dag fyrir 40 árum hóf skólinn starfsemi í húsi gamla Miðbæjarskólans. Skólinn var síðan settur formlega laugardaginn 18. október 1969. Í tilefni þessa afmælis var í dag tekinn í notkun fáni skólans og hátíðarfánar. Að lokinni athöfn á sal skólans þar sem rektor skólans flutti ávarp og... Meira >>>
Evrópski tungumáladagurinn 26. september 2009 Samstarf Vogaskóla og Menntaskólans í tilefni tungumáladagsins tókst með ágætum. Sex erlend tungumál hljómuðu allt um kring í stofum yngsta stigs Vogaskóla þegar máladeildarnemendur í MS kenndu 5-8 ára gömlum börnum í Vogaskóla að telja, nefna liti og kynna sig á 6 tungumálum. Meira >>>
Fundur um framtíð MS 23. september 2009 Skólinn verður lokaður í dag, 23.september, frá klukkan 13:00 vegna fundar starfsfólks um nýja námskrá og nýtt kerfi, lotubundið bekkjarkerfi, sem verið er að vinna að. Skrifstofan verður opin á morgun eins og vanalega frá klukkan 8 til 16. Meira >>>
Samstarf MS og Vogaskóla á degi tungumálsins föstudaginn 25. september 2009 23. september 2009 Í tilefni tungumáladagsins 25. september munu málabrautarnemendur í MS á þriðja og fjórða ári verða með talæfingar á ýmsum tungumálum meðal nemenda á yngsta stigi Vogaskóla. Nemendur í MS útbúa talæfingar á sex tungumálum: Spænsku, ensku, frönsku, þýsku, ítölsku og rússnesku. Nemendur Vogaskóla eru vanir stöðvaþjálfun, hringekju og verður... Meira >>>
Orgeltónleikar í Langholtskirkju 22. september 2009 Í hádeginu í dag, þriðjudag 22. september, höfum við þegið boð um að mæta með nemendur, kennara og annað starfsfólk á orgeltónleika í tilefni þess að fertugsafmælið nálgast hratt! Við biðjum kennara að hleypa nemendum út klukkan 11:45 og ganga með bekknum sem þeir eru að kenna í kirkjuna. Tónleikarnir standa í hálftíma og gerum við ráð fyrir að kennsla... Meira >>>
Efni af fundi með forráðamönnum nemenda í 1. bekk 16. september 2009 Fundur var haldinn með forráðamönnum nemenda í 1. bekk þann 15. september 2009 og var hann mjög vel sóttur. Glærur af fundinum er að finna á heimasíðunni undir Þjónusta - Foreldrar/forráðamenn. Þar er einnig að finna leiðbeiningar fyrir forráðamenn barna yngri en 18 ára til að fá aðgangsorð að Innu og upplýsingar um foreldraráð MS. Tenging... Meira >>>
Fundur með forráðamönnum nýnema 9. september 2009 Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund þriðjudaginn 15. september nk. kl. 19:45. Áætlaður fundartími er tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að skapa góð tengsl við foreldra og forráðamenn nýnema, að kynna skólann og starfsemina í vetur og svara fyrirspurnum. Dagskrá: 1. &nb... Meira >>>
Viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs 1. september 2009 Viðbragðsáætlun Menntaskólans við Sund komi til heimsfaraldurs flensu hefur verið sett á vefinn. Þar má meðal annars lesa um hvernig brugðist verður við komi til þess að skólanum verði lokað [skoða] Meira >>>
Fyrstu dagarnir í skólanum 28. ágúst 2009 Ágætu nemendur! Nú er skólastarfið komið á fullt. Þið eigið að vera búnir að útvega ykkur öll námsgögn sem tiltekin eru á bókalistanum og sem kennarar ykkar hafa bent ykkur á. Mikilvægt er að byrja skólastarfið vel. Mæta í allar kennslustundir, vera virkur þátttakandi í kennslustundunum og fylgja vel þeim leiðbeiningum sem eru gefnar. Þið... Meira >>>
Skólasetning 24. ágúst 2009 Skólinn verður settur á sal (Hálogalandi) þriðjudaginn 25. ágúst klukkan 9:00. Kennsla hefst sama dag strax að lokinni setningu samkvæmt stundaskrá. Meira >>>
Stundatöflur haustönn 2009 21. ágúst 2009 Stundatöflur bekkja á haustönn 2009 eru komnar á heimasíðu MS undir Námið og einnig inn í Innu. Meira >>>
Mæting með ábyrgð 20. ágúst 2009 Skólasóknarreglur voru í endurskoðun síðasta skólaár. Helsta breytingin er að þak er sett á vottorð og raunmæting er reiknuð í náms- og vinnueinkunn í hverri grein. Nemendur eru hvattir til að kynna sér skólasóknarreglurnar. Meira >>>
Bekkjarlistar 14. ágúst 2009 Nemendum hefur verið raðað í bekki. Smellið hér til að skoða bekkjarlista. Meira >>>
Upphaf skólaársins 10. ágúst 2009 Skólinn verður settur þriðjudaginn 25. ágúst klukkan 9:00 og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá strax að lokinni setningu. Nýnemar verða boðaðir til fundar á sal skólans mánudaginn 24. ágúst klukkan 15:00. Nýnemar og foreldrar/forráðamenn munu fá bréf sent heim frá skólanum með helstu upplýsingum um upphaf skólastarfsins og í hvaða bekk þeir... Meira >>>
Skýrsla um námskrárvinnu og smíði lotubundins bekkjarkerfis 30. júní 2009 Skýrsla Menntaskólans við Sund til Menntamálaráðuneytis um þróunarstarf í skólanum við innleiðingu nýrra laga og smíði lotubundins bekkjarkerfis er komin hér á vefinn [lesa] Meira >>>
Innritun nýnema er lokið 25. júní 2009 Innritun nýnema gekk vel og komust færri að en vildu. Næsta haust verða 9 bekkir á fyrsta námsári. Fjórir á félagsfræðabraut, fjórir á náttúrufræðibraut og einn bekkur verður á málabraut. Nýnemar staðfesta skólavist sína með því að greiða innritunargjöldin fyrir eindaga. Verði innritunargjöld ekki greidd fyrir eindaga er hætta á að viðkomandi... Meira >>>
Bókalisti 2009-2010 25. júní 2009 Bókalisti næsta skólaárs (2009-2010) er kominn á vefinn. Eins og alltaf er listinn birtur með fyrirvara um breytingar. Mikilvægt er að nemendur skoði vel hvaða útgáfa bókar verður kennd þar sem það á við. [skoða bókalistann] Meira >>>
Myndir frá brautskráningu í Háskólabíói 23. júní 2009 Búið er að setja myndir frá brautskráningu stúdenta þann 30. maí á vefinn. Myndirnar eru í hárri upplausn og henta vel til útprentunar. [skoða] Meira >>>
Afgreiðsla umsókna um framhaldsskóla haustið 2009 - verklagsreglur 10. júní 2009 Umsækjendur raðast í eftirfarandi forgangsröð á laus pláss í framhaldsskólum: 1. Nemendur sem færast milli anna/skólaára 2. Umsækjendur sem koma beint úr 10. bekk og aðrir sem eru ólögráða 3. Aðrir sem eru að sækja um framhaldsnám í fyrsta sinn 4. Þeir... Meira >>>
Einkunnir úr endurtektarprófum 3. júní 2009 Einkunnir úr endurtektarprófum verða afhentar á skrifstofu skólans mánudaginn 8. júní klukkan 12:30. Athugið að einkunnir eru ekki gefnar upp í síma. Meira >>>
Brautskráning stúdenta 2. júní 2009 Brautskráning stúdenta fór fram frá Háskólabíói laugardaginn 30. maí við hátíðlega athöfn. Að þessu sinni voru 128 nemendur brautskráðir. Af náttúrufræðibraut brautskráðust 70 nemendur. Af félagsfræðabraut voru brautskráðir 52 nemendur og af málabraut 6 nemendur. Í útskriftarhópnum voru piltar 62 og stúlkur 66. Hæstu einkunn á stúdentsprófi fékk... Meira >>>
Próftafla endurtökuprófa 29. maí 2009
Endurtektarpróf verða miðvikudag og fimmtudag í næstu viku, 3. og 4. júní. Öll prófin hefjast klukkan 9. Meira >>>
Viðtöl og upplýsingar vegna endurtökuprófa 28. maí 2009
Föstudaginn 29. maí verða viðtalstímar í nokkrum greinum vegna endurtektarprófa og þriðjudaginn 2. júní verða viðtalstímar við stærðfræði- og dönskukennara. Einnig geta nemendur nálgast námsefnispakka í stærðfræði. Meira >>>
Endurtektarpróf 26. maí 2009 Öll endurtektarpróf verða haldin 3. og 4. júní. Endurtektarprófin eru alltaf úr öllu námsefni vetrarins. Próftafla endurtökuprófa verður birt á vefnum næsta föstudag. Upplýsingar um viðtalstíma kennara eða endurtektarnámskeið munu verða settar á síðuna um leið og þær liggja fyrir. Nemendum í 1. -3. bekk ber skylda til að mæta í endurtektarpróf. Meira >>>
Einkunnaafhending og prófsýning vor 2009 25. maí 2009
Einkunnaafhending 1.-3. bekk hefst klukkan 12:00 þriðjudaginn 26. maí. Prófsýning hefst að lokinni einkunnaafhendingu klukkan 12:45 og stendur til klukkan 14:00.
Einkunnaafhending og prófsýning í 4. bekk er þriðjudaginn 26. maí klukkan 12:30 til 14:00. Æfing vegna útskriftar er strax að lokinni prófsýningu. Meira >>>
Lokað á skrifstofu skólans vegna fundarhalda 20. maí 2009 Skrifstofa skólans verður lokuð frá klukkan 14 í dag, miðvikudaginn 20. maí 2009 vegna fundarhalda starfsfólks. Skrifstofan verður opin á föstudaginn frá klukkan 08-16:00 eins og vanalega. Meira >>>
Próftafla sjúkraprófa 20. maí 2009 Föstudagur 22. maí. Sjúkrapróf í 1. -3. bekk Meira >>>
Stubbur er kominn út 30. apríl 2009 Einblöðungurinn Stubbur er kominn út. Að þessu sinni er fjallað um áhrif kreppunnar á skólastarfið [Skoða blaðið] Meira >>>
Fyrsti fundur nýrrar skólanefndar MS 29. apríl 2009 Fyrsti fundur nýrrar skólanefndar Menntaskólans við Sund var haldinn þriðjudaginn 28. apríl. Á fundinum var Guðmundur Kristinn Birgisson m.a. kosinn formaður skólanefndar Menntaskólans við Sund. [sjá nánar um skólanefnd] Meira >>>
Innritun nýnema - lágmarkskröfur 16. apríl 2009 Menntaskólinn við Sund hefur gefið út hver eru lágmarksviðmið úr grunnskóla í íslensku, ensku og stærðfræði sem horft verður til við innritun nýnema í júní. [lesa nánar] Meira >>>
Undirbúningur vorprófa 2. apríl 2009 Undirbúningur vorprófa er nú kominn á fullt. Nemendur eru hvattir til þess að leggja rækt við námið þessar síðustu vikur fyrir próf. Mikilvægt er að nemendur nýti páskafríið til náms og skipuleggi vel undirbúning sinn fyrir prófin. Á vef skólans er að finna reglur um próf og einkunnir auk þess sem þar er hægt að nálgast ýmis góð ráð varðandi námsundirbúning... Meira >>>
Lokun skrifstofu í páskafríi 2. apríl 2009 Skrifstofa skólans verður lokuð um páskana frá og með mánudeginum 6. apríl til og með þriðjudagsins 14. apríl. Skrifstofan opnar að loknu páskafríi klukkan 8:10 miðvikudaginn 15. apríl. Meira >>>
Sjálfsmatsskýrsla MS fyrir árið 2008 31. mars 2009 Skýrsla skólans um sjálfsmat árið 2008 er komin á vefinn. Um sjálfsmat skólans segir m.a. svo í úttekt sem Menntamálaráðuneytið lét gera á aðferðum skólans: Sjálfsmat er hluti af lögbundinni starfsemi framhaldsskóla og kveðið er á um það í skólasamningi menntamálaráðuneytis við Menntaskólann við Sund (MS). Í upphafi hvers skólaárs birtir MS sjálfsmatsáætlun,... Meira >>>
Endanlegt uppgjör vegna söfnunar á Þemadögum 27. mars 2009 Nemendur MS söfnuðu fé fyrir Barnaheill á þemadögum. Nú er komið að því að gera upp söfnunarátakið og munu nemendur skólans afhenda Barnaheillum það sem safnast hefur. Þeir nemendur sem eiga enn eftir að ganga frá greiðslum vegna söfnunardagsins geta greitt inn á reikningsnúmer 0338-13-221902. Kennitala reikningseiganda er 570489-1199. Greiðslur... Meira >>>
Fréttapistillinn Stubbur er kominn út 18. mars 2009 Stubbur, mars 2009 er kominn á vefinn. [lesa] Meira >>>
Ársskýrsla MS fyrir 2008 18. mars 2009 Ársskýrsla Menntaskólans við Sund er komin á vefinn. Í skýrslunni er komið inn á nokkra þætti úr skólastarfinu. Gerð er grein fyrir helstu áherslum og breytingum á árinu 2008. [meira..] Meira >>>
Próftafla vorannar 2009 11. mars 2009 Próftafla vorannar 2009 er komin á vefinn. Taflan er vistuð undir Námið-Próftafla vor 2009. Nemendur eru hvattir til þess að kynna sér vel hvenær þeir eiga að vera í prófi. Mikilvægt er að mæta tímanlega í öll próf, kynnna sér vel reglur um próf og prófahald og nýta tímann vel.[Sjá nánar] Meira >>>
Af fundi foreldraráða á Reykjavíkursvæðinu 11. mars 2009 Fulltrúar foreldraráða nokkurra framhaldsskóla hittust 18. febrúar í Húsnæði Heimilis og skóla til að ræða málin. Hægt er að lesa fundargerð þessa fundar hér Meira >>>
Valgreinar í boði 2009-2010 9. mars 2009 Nemendur í 2. og 3. bekk eiga að velja tvær valgreinar og tvær til vara. Valið fer fram á Námsnetinu dagana 23. mars til 1. apríl. Kynningarbæklingur Meira >>>
Opið hús í Menntaskólanum við Sund 6. mars 2009 Meira >>>
Uppgjör þemadaga 4. mars 2009 Nemendur MS söfnuðu fé fyrir Barnaheill á þemadögum. Nú er komið að því að gera upp söfnunarátakið og munu nemendur skólans afhenda Barnaheillum það sem safnast hefur um miðjan mánuðinn. Þeir nemendur sem eiga enn eftir að ganga frá greiðslum vegna söfnunardagsins geta greitt inn á reikningsnúmer 1154-15-201902. Kennitala reikningseiganda er 570489-1199.... Meira >>>
Foreldraráð Menntaskólans við Sund 26. febrúar 2009 Stofnað hefur verið foreldraráð Menntaskólans við Sund. Á vef skólans (undir Þjónusta) er hægt að sækja upplýsingar um hverjir sitja í stjórn Foreldraráðs MS og lesa lög félagsins. [meira....] Meira >>>
Úttekt á sjálfsmati við Menntaskólann við Sund 25. febrúar 2009 Menntamálaráðuneytið hefur virt niðurstöður úttektar á sjálfsmatsaðferðum 29 framhaldsskóla. Í niðurstöðum útttektar á Menntaskólanum við Sund segir m.a.: "Menntaskólinn við Sund uppfyllir bæði viðmið ráðuneytisins um sjálfsmatsaðferðir og um framkvæmd sjálfsmatsins. Ráðuneytið fagnar þessum góðu niðurstöðum." Í greinargerð úttektaraðila sem ráðuneytið... Meira >>>
Fræðsluerindi Hins íslenska náttúrufræðifélags 19. febrúar 2009 Mánudaginn 23. febrúar kl. 17:15 verður haldið fimmta fræðsluerindi vetrarins. Erindið verður haldið í fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund (Bjarmalandi) að Gnoðarvogi 43. Allir eru velkominir og aðgangur er ókeypis! Pokadýr í Ástralíu Rannveig Magnúsdóttir, doktorsnemi í líffræði við Háskóla Íslands, flytur erindi um pokadýr Ástralíu. Í þessum... Meira >>>
Áheitaferð 1. bekkjar á Egluslóð 2009 11. febrúar 2009 Í tilefni þemadaga við Menntaskólann við Sund sem verða í vikunni 15. til 21. febrúar hefur verið ákveðið að ganga á ný til samstarfs við Barnaheill. Nemendur við skólann munu nú í fjórða sinn safna fé og styrkja samtökin Barnaheill sem vinna að því að bæta hag barna víðsvegar um heim. Hluti þessa verkefnis að þessu sinni er áheitaferð nemenda... Meira >>>
Deiliskipulag vegna stækkunar MS 6. febrúar 2009 Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag tillögu skipulagsráðs um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 43 við Gnoðarvog, þar sem Menntaskólinn við Sund stendur. Í breytingunni felst niðurrif núverandi húsa að hluta og nýbyggingar í þeirra stað. Deiliskipulagsbreytingin er gerð að ósk menntamálaráðuneytisins og snýr einvörðungu að lóð Menntaskólans... Meira >>>
Samstarf MS og Vogaskóla á degi stærðfræðinnar 6. febrúar 2009 Grannskólarnir MS og Vogaskóli hafa tekið höndum saman í tilefni dagsins og mun hópur nemenda úr MS vinna samvinnuverkefni með nemendum úr 8. ,9, og 10 bekk Vogaskóla. Verkefnið fer fram í Vogaskóla og munu nemendur vinna að margvíslegum þrautalausnum sem tengjast þema dagsins, þríhyrningsforminu. Meira >>>
Vel heppnaðri brunaæfingu lokið 28. janúar 2009 Nú er nýlokið vel heppnaðri brunaæfingu í Menntaskólanum við Sund í samvinnu við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Securitas. Æfingin er hluti af átaki í öryggismálum í skólanum sem innifelur í sér meðal annars endurskoðun á rýmingaráætlun, útgáfu á handbók um öryggismál, haldið hefur verið námskeið í fyrstu hjálp og námskeið í notkun slökkvitækja,... Meira >>>
Fræðslufundur Hins íslenska náttúrufræðifélags 26. janúar 2009 Vakin er athygli á því að fræðslufundir HÍN verða í vetur í Bjarmalandi, fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund. Fyrsti fundurinn verður í dag, mánudaginn 26. janúar og hefst stundvíslega klukkan 17:15. Árni Einarsson mun þar fjalla um lífríki Mývatns. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Næstu erindi á árinu 2009: Mánudagurinn... Meira >>>
Fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á 1. ári 16. janúar 2009 Haldinn verður fundur í Menntaskólanum við Sund með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári þriðjudaginn 20. janúar 2009 kl. 19:45. Áætlaður fundartími er tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að efla samstarf forráðamanna og skólans, skýra námsframboð í skólanum og fara yfir stöðu mála barna ykkar. Á fundinum fjalla sviðstjórar um... Meira >>>
Framhaldsstofnfundur foreldraráðs Menntaskólans við Sund 16. janúar 2009 Boðað er til framhaldsstofnfundar foreldraráðs Menntaskólans við Sund miðvikudaginn 4. febrúar næstkomandi kl. 20:00. Fundurinn verður í stofu 19 í MS, gengið inn um aðaldyr og upp stigann, alveg upp á þriðju hæð. Stofa 19 er fremst á vinstri hönd þegar komið er inn á ganginn. Dagskrá framhaldsstofnfundar 1. Setning ... Meira >>>
Jöfnunarstyrkur 15. janúar 2009 Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu á heimasíðu Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Hægt er að skrá umsókn á Innu eða netbankanum! Ath. að þeir sem völdu aðstoðartíma ?Allt árið? þegar sótt var um vegna náms á haustönn 2008 þurfa ekki að endurnýja umsókn vegna vorannar 2009. Ef nemandi... Meira >>>
Uppfærðar stundatöflur 15. janúar 2009 Búið er að setja inn uppfærðar stundatöflur 1. bekkjar hér á vefinn. Vakin er athygli á að nú eru tímar í stærðfræðiverinu komnir inn á töflu hvers bekkjar. [skoða töflur] Meira >>>
Stærðfræðiver 15. janúar 2009 Menntaskólinn við Sund opnar stærðfræðiver fyrir alla nemendur á fyrsta og öðru námsári. Boðið verður upp á aðstoð í stærðfræði á föstudögum í stofu 19 samkvæmt stundatöflu hér að neðan. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þessa aðstoð. Meira >>>
Stundatöflur vorannar 2009 29. desember 2008 Stundatöflur vorannar 2009 eru komnar á vef skólans. Hægt er að skoða töflur einstakra bekkja hér [skoða] Meira >>>
Niðurstöður nemendakönnunar 22. desember 2008 Nú liggja fyrir niðurstöður úr nemendakönnun haustannar 2008. Hægt er að nálgast meðalgildi allra kennara (heildarniðurstöður) hér á vefnum [skoða] Meira >>>
Skrifstofan er opin yfir hátíðirnar sem hér segir 19. desember 2008 Mánudaginn 22. desember frá klukkan 8 til 16. Mánudaginn 29. desember frá klukkan 10-14 og þriðjudaginn 30 desember frá klukkan 10-14. Skrifstofan opnar á ný 5. janúar og verður opin frá klukkan 8 til 16. Meira >>>
Sjúkrapróf haustannar 2008 17. desember 2008 Sjúkrapróf haustannar verða fimmtudaginn 18. júní og hefjast fyrstu prófin klukkan 9:00. Prófað er í tveimur lotum og hefst síðari lotan klukkan 11:00 [sjá hér að neðan]. Sjúkrapróf Öll sjúkrapróf verða haldin 18. desember, ýmist klukkan 9 eða klukkan 11. Prófunum er raðað eftir tíma og bekkjum (árgöngum). 18. des. kl. 9:0... Meira >>>
Fullveldisdagurinn 1. desember 2008 Í dag, 1. desember eru 90 ár frá því að Ísland var lýst frjálst og fullvalda ríki árið 1918. Dagurinn varð smám saman að almennum þjóðhátíðardegi fram að lýðveldistíma. Háskólastúdentar hófu hátíðahöld á fullveldisdaginn á fyrstu árum þriðja áratugarins, og héldu tryggð við daginn þegar 17. júní tók við sem þjóðhátíðardagur eftir lýðveldisstofnun 1944.... Meira >>>
Stofnun foreldraráðs - vinnan framundan 27. nóvember 2008 Stofnfundur foreldraráðs Menntaskólans við Sund var haldinn 25. nóvember síðastliðinn. Á fundinum var ákveðið að boða til framhaldsstofnfundar og þriggja manna nefnd foreldra valin til að undirbúa þann fund. Nefndina skipa Hafije Zogaj, Þórunn Margrét Ólafsdóttir og Þröstur Árni Gunnarsson. Meira >>>
Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember 2008 Dagur íslenskrar tungu er í dag, 16. nóvember. Í tilefni dagsins verður hátíðardagskrá í hátíðasal Háskóla Íslands kl. 14:00–15:30 og mun menntamálaráðherra m.a. veita Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar en í dag er afmælisdagur þessa þjóðskálds. Í tilefni dagsins opnum við ORÐAGALDUR á vef skólans þar sem fjallað er um skáldskap í skólanum. Þá verða ýmsar... Meira >>>
Próftafla haustannar 2008 er komin á vefinn 13. nóvember 2008 Próftafla haustannar 2008 er komin á vefinn. Nemendur eru hvattir til þess að kynna sér vel hvenær próf verða. jafnframt eru nemendur hvattir til þess að lesa vel reglur um próf og reglur um námsmat hér á vefnum. [próftafla haustannar 2008] Meira >>>
Heilsuefling í framhaldsskólum 12. nóvember 2008 Í dag, 12. nóvember munum við fara frá skólanum kl. 11:15 í 3 km göngu undir leiðsögn Guðmundar Ólafssonar og Stefán Halldórssonar. Allir starfsmenn og nemendur eru hvattir til að mæta fyrir 11:15 á planið framan við skólann. Meira >>>
Stoðtímar í stærðfræði 24. október 2008 Stoðtímar í stærðfræði fyrir nemendur í 1. bekk. Skólinn býður upp á stoðtíma í stærðfræði fyrir nemendur á 1. ári. Stoðtímarnir verða haldnir alla laugardaga í nóvember frá kl. 10:30 – 11:30 og hefjast laugardaginn 1. nóvember. Nemendur skulu skrá sig í tímana á skrifstofu skólans og greiða um leið 4.000 krónur. Kennt verður í stofu... Meira >>>
Nemandi í úrslitum í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna 23. október 2008 Jón Þór Árnason nemandi í 4.X er í hópi efstu manna í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna 2008. Jón komst í úrslit á efra stigi og mun taka þátt í úrslitakeppninni. Meira >>>
20 ár frá því að verkið Blómgun eftir Sigurjón Ólafsson var afhjúpað á lóð skólans 23. október 2008 Í dag, 4. nóvember 2008 eru nákvæmlega 20 ár liðin síðan verið Blómgun eftir Sigurjón Ólafsson var afhjúpað á lóð Menntaskólans við Sund. Sigurjón vann þetta verk árið 1978. Frummyndin er úr tré, 121x44,5x47 sm. Vorið 1987 sótti Menntaskólinn við Sund um framlag úr Listskreytingasjóði ríkisins til að láta stækka myndina, endurgera hana í varanlegt efni... Meira >>>
Nemendur í Njáluferð 16. október 2008 Nemendur á þriðja námsári fara á Njáluslóðir í dag og er ferðin undir stjórn íslenskukennara eins og undanfarin ár. Í svona ferðum eru heimsóttir ýmsir merkisstaðir úr Njálu auk þess sem oft er brugðið á leik en stundum hafa verði settir upp leikþættir þar sem atriði úr Njálu eru myndgerð. Meira af ferðinni síðar. Meira >>>
Tilkynning frá samtökunum Heimili og skóli 10. október 2008 Menntaskólinn við Sund hefur verið beðinn um að birta eftirfarandi tilkynningu frá samtökunum Heimili og skóli: Til foreldra frá Heimili og skóla – landssamtökum foreldra 10. október 2008 Foreldrar eiga það sameiginlegt að vilja að börnum þeirra líði vel. Mikilvægt er fyrir okkur öll að staldra við og huga að því sem eykur vellíðan... Meira >>>
Skýrsla um starfendarannsóknir í MS 2. október 2008 Skýrsla skólans um starfendarannsóknir (starfsrýni) síðasta skólaár er komin á vef skólans [Skýrslan] Meira >>>
MS styður grænan ferðamáta 19. september 2008 Í morgun tóku rekstrarstjóri húsnæðis MS og rektor skólans á móti nemendum og starfsfólki þegar mætt var til vinnu. Vel var tekið á móti þeim sem notuðu "grænan" ferðamáta til að koma í skólann. Þeir sem komu með strætó, voru gangandi eða hjólandi fengu orkustöng frá skólanum fyrir framtakið og hvatningu til þess að halda áfram á sömu braut. Meira >>>
Umhverfisvikan - ráðherrar kynna sér verkefni í umhverfismálum 19. september 2008 Nú stendur endurvinnsluvika sem hæst en hún er haldin til að kynna mikilvægi endurvinnslu fyrir íslenskt samfélag. Sérstök áhersla hefur verið lögð á kynningu fyrir unglinga með útgáfu kennsluefnis, uppsetningu endurvinnslutunna í framhaldsskólum og ýmsum verkefnum innan skólanna. Í tilefni endurvinnsluvikunnar heimsóttu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir... Meira >>>
Ráðherrar í heimsókn 18. september 2008 Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra munu heimsækja skólann í dag vegna endurvinnsluvikunnar sem nú stendur yfir. Þær munu kynna sér þau verkefni sem unnin eru í skólanum í tengslum við umhverfismál. Menntaskólinn við Sund býður þær hjartanlega velkomnar. Meira >>>
Fundur um umhverfismál á sal skólans 17. september 2008 Rektor boðaði í dag alla nemendur skólans á sal til að ræða þátttöku skólans í Endurvinnsluvikunni og áherslur skólans í umhverfismálum. Menntaskólinn við Sund er virkur þátttakandi í Endurvinnsluvikunni Tunnur í skólanum til að vekja athygli á flokkun og endurnýtingu sorps. Við leggjum áherslu á fræðslu um umhverfismál og þessa vikuna er... Meira >>>
Fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema 16. september 2008 Í kvöld, þriðjudaginn 16. september verður haldinn fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund. Fundurinn hefst kl. 19:45 og er áætlað að hann standi í tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að skapa góð tengsl við foreldra og forráðamenn nýnema, að kynna skólann og starfsemina í vetur og svara fyrirspurnum. Foreldrum... Meira >>>
Stundatöflur haustannar 2008 16. september 2008 Stundatöflur bekkja á haustönn 2008 hafa nú verið settar inn á heimasíðu skólans undir Námið - Stundatöflur. Stundatöflur Meira >>>
Umhverfisvikan - MS er virkur þátttakandi 11. september 2008 Menntaskólinn við Sund er virkur þátttakandi í umhverfisvikunni 15. til 19. september. Þessa viku verður fræðsla um umhverfismál fyrirferðarmikil í skólanum. Við flokkum sorp og stuðlum að aukinni og endurvinnslu úrgangs. Í umhverfisvikunni mun verða áhersla á "GRÆNAN FERÐAMÁTA" Við hvetjum alla sem hafa tök á því að skilja bílinn... Meira >>>
Stærðfræði í 4. bekk á umhverfis- og líffræðikjörsviði 21. ágúst 2008 Nemendur í 4. bekk á líffræði- og umhverfiskjörsviði athugið. Breyting hefur orðið á bókalista í stærðfræði. Kennslubók í stærðfræði er Thomas, G.B.: Thomas’ Calculus, eleventh edition (ellefta útgáfa), Pearson-Addison Wesley, 2005. Þetta er sama kennslubók og kennd var í þriðja bekk síðastliðinn vetur. Fæst í Bóksölu stúdenta. Meira >>>
Skóladagatal næsta skólaárs 12. júní 2008 Dagatal fyrir skólaárið 2008-2009 hefur verið sett á vef skólans. Skólinn verður settur þriðjudaginn 26. ágúst og hefst kennsla sama dag. Nýnemar eru boðaðir á fund á sal skólans mánudaginn 25. ágúst kl. 15:30 [sjá nánar] Meira >>>
Myndir frá brautskráningu 6. júní 2008 Búið er að setja á vefinn myndir frá brautskráningu og skólaslitum sem fram fór í Háskólabíói laugardaginn 31. maí. Myndirnar eru flokkaðar eftir bekkjum og stafrófsröð nemenda innan bekkjar. Jafnframt er þar að finna tölulegar upplýsingar um útskriftarhópinn sem og ræðu rektors um menntun í umróti breytinga. [skoða] Meira >>>
Skólaslit 4. júní 2008 Brautskráning stúdenta og skólaslit Menntaskólans við Sund fóru fram í Háskólabíói laugardaginn 31. maí. Brautskráðir voru 143 stúdentar, 75 piltar og 68 stúlkur. Nýstúdentar eru af þremur brautum, af náttúrufræðibraut 66, af félagsfræðabraut 63 og af málabraut 14 stúdentar. Dúx skólans með 9,2 í meðaleinkunn var Ingibjörg Ester Ármannsdóttir. Ingibjörg... Meira >>>
Menntaskólinn við Sund í úrslit sem Fyrirmyndarstofnun 2008 15. maí 2008 Menntaskólinn við Sund var ásamt 15 öðrum ríkisstofnunum í forvali fyrir tilnefningu sem ríkisstofnun til fyrirmyndar árið 2008. Skólinn var síðan valinn í hóp fimm ríkisstofnana sem komust í úrslit. Fyrirkomulagið var þannig að fjármálaráðherra skipaði nefnd til þess að velja ríkisstofnun sem skarað hefur fram úr og verið til fyrirmyndar... Meira >>>
Afhending námseinkunna í 4. bekk 28. apríl 2008 Námseinkunnir í 4. bekk verða afhentar þriðjudaginn 29. apríl 2008 kl. 11:30. Umsjónarkennarar afhenda einkunnir: 4. A stofa 21 4. C stofa 22 4. D stofa 23 4. E stofa 24 4. G stofa 25 4. S stofa 26 4. T stofa 27 4. X stofa 28 Meira >>>
Prófatíminn er að hefjast 28. apríl 2008 Fyrsti prófadagur er þriðjudagurinn 29. apríl. Vakin er athygli á því að öll skrifleg próf hefjast kl. 9:00. Mikilvægt er að nemendur mæti tímanlega fyrir próf (5 til 10 mínútum áður). Munið að borða léttan morgunmat áður en farið er í próf og nýtið allan prófatímann. Meira >>>
Matseinkunnir 28. apríl 2008 Matseinkunnir vorannar 2008 verða afhentar mánudaginn 28. apríl kl. 14:30-15:30 í Miðholti fyrir framan skrifstofuna. Meira >>>
Góður endasprettur skiptir máli 18. apríl 2008 Nú er að líða að lokum kennslutímans, aðeins um tvær vikur til prófa. Margir nemendur eru farnir á fullt að undirbúa sig fyrir prófin sem hefjast í lok mánaðarins. Mikilvægt er fyrir alla nemendur að mæta vel þessa síðustu kennsludaga og láta námið ganga fyrir annarri vinnu. Það er lykill að góðum námsárangri að skipuleggja sig vel og gera... Meira >>>
Nýjar skýrslur um skólaþróun 18. apríl 2008 Nokkrar nýjar skýrslur eru komnar á vefinn. Um er að ræða skýrslur sem skólinn hefur látið vinna fyrir sig sem hluta af stefnumótun til framtíðar. [Sjá nánar] Meira >>>
Valgreinaval í 2. og 3. bekk 15. apríl 2008 Valgreinaval verður framlengt á Námsnetinu til 18. apríl en þeir sem velja á tilsettum tíma þ.e. fyrir 16. apríl munu ganga fyrir í valgreinar. Meira >>>
Valgreinaval í 2. og 3. bekk 2. apríl 2008 Búið er að opna fyrir valgreinaval nemenda í 2. og 3. bekk fyrir skólaárið 2008-2009 á Námsnetinu. Nemendur velja tvær valgreinar og tvær til vara. Til að velja smellið á 'Skráning í námskeið' undir 'Sérstakar aðgerðir' sem er efst í vinstra horni á fystu síðu þegar þið eruð komin inn á Námsnetið. Valgreinalýsingar er að finna á heimasíðu MS undir... Meira >>>
Söngleikurinn Stjörnustríð í uppfærslu Thalíu 1. apríl 2008 Söngleikurinn Stjörnustríð í uppfærslu leikfélags Menntaskólans við Sund og leikstjórn Halldórs Gylfasonar og Orra Hugsins Ágústssonar er nú kominn á fjalirnar. Söngleikurinn er byggður á Star Wars myndum Georg Lucas. Sýningar eru í Silfurtunglinu, Austurbæ. Nánar um Stjörnustríð á vefnum Meira >>>
Velkomin til starfa á ný eftir páskafrí 26. mars 2008 Kennsla hófst aftur eftir páskafrí í dag 26. mars. Nú eru fimm vikur eftir af kennslutíma vorannar 2008 og eru nemendur hvattir til að nota þann tíma vel í náminu og að nýta sér Námsnetið við skipulag námsins. Meira >>>
Lokun skrifstofu í páskafríi 14. mars 2008 Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með mánudeginum 17.03.2008 til og með mánudeginum 24.03.2008. Skrifstofan opnar á ný að loknu páskaleyfi þriðjudaginn 25. 03.2008 kl. 8:00. Meira >>>
Valgreinaval 2008 12. mars 2008 Nemendur í 2. og 3. bekk velja valgreinar fyrir næsta skólaár á Námsnetinu frá 1. til 15. apríl. Lýsingar á valgreinum sem standa nemendum til boða eru komnar á heimasíðuna og bæklingi með valgreinalýsingum verður dreift til allra nemenda í 2. og 3. bekk fimmtudaginn 13. mars 2008. Valgreinalýsingar 2008 Meira >>>
Prófkvíðanámskeið 11. mars 2008 Prófkvíðanámskeið hefst mánudaginn 31. mars 2008 og verður haldið fjóra mánudaga fram að prófum, tvær kennslustundir í senn. Síðasti tími verður mánudaginn 21. apríl. Skráning fer fram á skrifstofu skólans og kostar námskeiðið 3500kr. Nánari upplýsingar gefur Björk Erlendsdóttir félags- og námsráðgjafi MS Meira >>>
Próftafla vors 2008 26. febrúar 2008 Skólaráð hefur afgreitt frá sér endanlega próftöflu vorannar 2008. Kynnið ykkur próftöfluna hér. Meira >>>
Kjörsviðsval 22. febrúar 2008 Kjörsviðsval nemenda í 1. og 2. bekk fer fram vikuna 25. til 29. febrúar. Kynningar á kjörsviðum er að finna hægra megin hér á forsíðu heimasíðu MS. Mikilvægt er að vanda valið. Meira >>>
Dagskrá þemadaga 11. febrúar 2008 Dagskrá þemadaga (þriðjudagsins 12. febrúar og miðvikudagsins 13. febrúar) er komin upp á tilkynningatöflur í skólanum. Þessa daga er farið í námstengdar fræðslu- og skoðunarferðir. Nemendur eru beðnir um að kynna sér vel dagskrá síns bekkjar. Mikilvægtr er að fylgja vel leiðbeiningum og mæta tímalega í allar ferðir.[þemadagar... Meira >>>
Stuðningstímar í stærðfræði 5. febrúar 2008 Stuðningstímar í stærðfræði á vorönn eru sem hér segir: Meira >>>
Foreldrafundir bekkja á fyrsta námsári 4. febrúar 2008 Vikuna 4. - 8. febrúar heldur forvarnarfulltrúi MS, Björk Erlendsdóttir, fundi með foreldrum/forráðamönnum nemenda í einstökum bekkjum á fyrsta námsári. Tilgangurinn er að efla samskipti foreldra/forráðamanna og kalla eftir hugmyndum um hvernig við getum eflt forvarnir og samstarfið enn frekar. Fundirnir verða haldnir í stofu 1 í Langholti... Meira >>>
Örnámskeið um skráningu heimilda fyrir nemendur í 4. bekk 1. febrúar 2008 Örnámskeið verður haldið um skráningu heimilda fyrir nemendur í 4. bekk fimmtudaginn 7. febrúar kl. 11:15 - 12:10 í Bjarmalandi. Kennarar verða Halla Kjartansdóttir og Þórdís T. Þórarinsdóttir. Efni: *Skráning heimilda, tilvitnana og tilvísana. *Skráning heimilda af Netinu. *Fyrirspurnir frá nemendum.
Meira >>>
Kjörsviðsverkefni í 4. bekk 29. janúar 2008 Nemendur í 4. bekk. Athugið að skiladagur lokauppkasts kjörsviðsverkefnis er 11. febrúar 2008. Meira >>>
Foreldrafundur 22. janúar 2008 kl. 19:45 16. janúar 2008 Haldinn verður fundur með foreldrum og forráðamönnum nemenda á fyrsta námsári þriðjudaginn 22. janúar 2008 kl. 19:45. Tilgangur fundarins er að efla samstarf forráðamanna og skólans, skýra námsframboð í skólanum og fara yfir stöðu nemenda í hverjum bekk. Dagskrá: 1. Ávarp rektors 2. Kynning sviðstjóra á kjörsviðum innan námsbrauta 3. Umsjónarkennarar... Meira >>>
Gettu betur 15. janúar 14. janúar 2008 MS keppir við Verslunarskólann í 2. umferð spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur þriðjudaginn 15. janúar kl. 19:30 í Útvarpshúsinu við Efstaleiti. Lið MS skipa þeir Ari Gunnar Þorsteinsson, Bjarki Þór Steinarsson og Þórhallur Ragnarsson. Meira >>>
Stundatöflur vorannar 2008 3. janúar 2008 Stundatöflur bekkja á vorönn 2008 eru nú komnar í Innu og hér á heimasíðuna. Stundatöflur vorönn 2008 Meira >>>
Námsnetið 12. desember 2007 Flýtileiðin inn á Námsnetið á heimasíðu MS hefur verið lagfærð. Námsnetið opnast nú þegar smellt er á táknmyndina. Ef kosið er að slá slóðina fyrir Námsnetið beint inn þá er hún: https://www.namsnet.is/ms Meira >>>
Haustannarpróf 2007 27. nóvember 2007 Haustannarpróf 2007 verða haldin frá 3. - 18. desember. Öll próf hefjast kl. 9:00. Einkunnaafhending og prófsýning verður 20. desember kl. 12:30 - 15:00. Próftafla, reglur um lágmarkskröfur, prófreglur og leiðbeiningar til nemenda um prófaundirbúning og próftöku eru á heimasíðunni. Próftafla Meira >>>
Vel heppnuð afmælishátíð til heiðurs Jónasi Hallgrímssyni 16. nóvember 2007 Nemendur á fjórða námsári stóðu fyrir vel heppnaðri afmælishátíð í skólanum til heiðurs Jónasi Hallgrímssyni, en 200 ár eru nú liðin frá fæðingu hans. Í boði voru glæsilegar veitingar, glæsilegar hnallþórur sem nemendur höfðu sjálfir bakað og svo mjólk sem var í boði Mjólkursamsölunnar. Nemendur sungu ljóð Jónasar undir stjórn formanns nemendafélagsins... Meira >>>
Skáldskapur Jónasar Hallgrímssonar 14. nóvember 2007 Hér er eitt dæmi um snilli Jónasar: Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg. En anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. Áhugasömum er bent á eftirfarandi vefsíður: http://www.jonas.ms.is/ http://www.jonashallgrimsson.is/ Meira >>>
Dagur íslenskrar tungu - afmælishátíð Jónasar Hallgrímssonar 13. nóvember 2007 Dagur íslenskrar tungu er 16. nóvember næstkomandi. Að þessu sinni er jafnframt verið að fagna því að 200 ár eru liðin frá fæðingu þessa merka manns. Deginum verður fagnað með ýmsu móti í Menntaskólanum við Sund. Meðal annars munu nemendur á fjórða ári bjóða til afmælisveislu Jónasi til heiðurs í Þrísteini á föstudaginn og verður veislan frá... Meira >>>
Fræðslufundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema í MS 9. nóvember 2007 Fræðslufundur fyrir foreldra og forráðamenn nýnema verður haldinn í Menntaskólanum við Sund fimmtudaginn 15. nóvember næstkomandi kl. 18:00 – 19:30 í Bjarmalandi (fyrirlestrarsalur á 1. hæð). Tilgangurinn er að fræða foreldra og forráðamenn nemenda í 1. bekk almennt um námsaðferðir nemenda og kennsluaðferðir í stærðfræði. Áhersla verður lögð... Meira >>>
Nemendakönnun haustönn 2007 30. október 2007 Nemendakönnun haustönn 2007 verður á Námsnetinu 29. október til 9. nóvember. Hér gefst öllum nemendur kostur á að meta nám og kennslu í MS og leggja þar með sitt af mörkum til að bæta skólastarfið. Meira >>>
Próftafla haustannarprófa 2007 22. október 2007 Skólaráð MS samþykkti endanlega próftöflu haustannar 2007 á fundi sínum þann 18. október. Hún hefur verið hengd upp á auglýsingatöflur skólans og sett á heimasíðu skólans undir Námið. Meira >>>
Aðstoð við heimanám 19. október 2007 Aðstoð við heimanám verður veitt nemendum í 1. og 2. bekk á laugardögum kl. 11:00-12:00 og á þriðjudögum kl. 15:00-16:00 í stofu 3. Gengið inn í Langholt. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þessa þjónustu og bæta námsárangur sinn. Meira >>>
Félagsfundur FÍF í Menntaskólanum við Sund 15. október 2007 Félagsfundur FÍF verður í Menntaskólanum við sund mánudaginn 15. október kl. 13:30
Dagskrá: Frumvarp til fjárlaga. Fulltrúar menntamálaráðuneytisins fara yfir fjárlagafrumvarpið og svara spurningum.
Önnur mál Meira >>>
Stöðumat í 1. og 2. bekk 10. október 2007 Niðurstöður úr stöðumati í 1. og 2. bekk liggja nú fyrir. Foreldrar/forráðamenn fá sent bréf með ítarlegum upplýsingum um stöðumatið en sambærilegt bréf er sent beint til þeirra nemenda sem eru orðnir 18 ára. Meira >>>
Kórinn er tekinn til starfa á ný 5. október 2007 Kór Menntaskólans við Sund hefur hafið æfingar á ný. Æfingar eru í Þrísteini á miðvikudögum og hefjast kl. 16:00. Nýr kórstjóri, nýjar áherslur. Meira >>>
Stöðumat í 1. og 2. bekk - Sjálfsmat nemenda í 2. bekk 28. september 2007 Stöðumat í 1. og 2. bekk verður 1. - 5. október. Nú er stöðumat í fyrsta skipti í 2. bekk og þar verða nemendur einnig beðnir um að meta frammistöðu sína í hverri námsgrein. Meira >>>
Fundur með foreldrum/forráðamönnum nýnema 18. september 2007 11. september 2007 Fundur verður haldinn með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund þriðjudaginn 18. september nk. kl. 19:45. Áætlaður fundartími eru tvær klukkustundir. Tilgangur fundarins er að skapa góð tengsl við foreldra og forráðamenn nýnema, að kynna skólann og starfsemina í vetur og svara fyrirspurnum. Foreldrum/forráðamönnum gefst kostur... Meira >>>
Skil á vottorðum 29. ágúst 2007 Þegar upp koma veikindi þurfa nemendur að skila á skristofu skólans vottorði strax að loknum veikindum. Nemendur eru hvattir til þess að nota Námsnet MS á meðan á veikindum stendur eigi þeir nokkurn kost á því. Meira >>>
Valgreinar í 3. og 4. bekk 29. ágúst 2007 Óskir um breytingar á valgreinum skólaárið 2007 – 2008 verða að berast til konrektors í síðasta lagi föstudaginn 31. ágúst 2007. Meira >>>
Skólasetning 23. ágúst 2007 Skólasetning verður kl. 9:00 föstudaginn 24. ágúst 2007 á sal skólans (Hálogaland). Kl. 9:25 afhenda umsjónarkennarar nemendum í 2. - 4. bekk stundatöflur. Sjá staðsetningu hér að neðan. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá kl. 9:45. 2. A stofa 21 2. C stofa 22 2. D stofa 23 2. G stofa 24 2. R stofa 25 2.... Meira >>>
Stundatöflur haustannar 2007 14. ágúst 2007 Stundatöflur bekkja fyrir haustönn 2007 eru komnar á heimasíðu MS. Sjá undir Námið -> Stundatöflur. Meira >>>
Skólasetning haustönn 2007 6. júlí 2007 Menntaskólinn við Sund verður settur föstudaginn 24. ágúst kl. 9:00. Kennsla hefst strax að lokinni skólasetningu samkvæmt stundaskrá. Kynningarfundur fyrir nýnema verður haldinn fimmtudaginn 23. ágúst kl. 15:00. Meira >>>
Skrifstofan er lokuð vegna sumarleyfa 2. júlí 2007 Skrifstofa skólans verður lokuð vegna sumarleyfa til 8. ágúst en þá opnar hún á ný og verður opin frá 8. ágúst til 21. ágúst frá kl. 8:30 til 15:30 alla virka daga. Frá og með 22. ágúst verður skrifstofan opin alla virka daga frá kl. 8:00 til 16:00. Meira >>>
Bókalisti 2007 - 2008 21. júní 2007 Bókalisti fyrir skólaárið 2007 - 2008 er kominn á heimasíðuna. Listinn liggur einnig frammi á skrifstofu skólans. Bókalisti. Meira >>>
Innritun nýnema í MS fyrir skólaárið 2007 – 2008 er lokið 20. júní 2007 Innritun nýnema í Menntaskólann við Sund skólaárið 2007-2008 er lokið. Greiðsluseðlar skólagjalda hafa verið sendur út og nýnemar staðfesta og tryggja skólavist sína með því að greiða skólagjöldin fyrir eindaga. Rektor. Meira >>>
Brautskráning og útskrift fór fram í Háskólabíói 12. júní 2007 Brautskráning og útskrift fór fram við hátíðlega athöfn í Háskólabíói 26. maí síðastliðinn. Hægt er að skoða myndir frá athöfninni og lesa ræðu rektors með því að smella hér [lesa meira] Meira >>>
Einkunnir úr endurtektarprófum 4. júní 2007 Afhending einkunna úr endurtektarprófum fer fram miðvikudaginn 6.júní kl. 13:00 – 16:00 á skrifstofu skólans. Nemendur geta einnig fylgst með einkunnaskráningu í INNU. Meira >>>
Styrkur frá Nordplus Junior 31. maí 2007 Menntaskólinn við Sund hefur fengið þróunarstyrk að upphæð 79.100 SEK. Upphæðinni verður varið til dönskunáms og nemendaskipta í samvinnu við Frederiksborg Gymnasium. Verkefnisstjóri þessa starfs í MS er Pétur Rasmussen. Meira >>>
Brautskráning og skólaslit 25. maí 2007 Brautskráning og skólaslit Menntaskólans við Sund verður í Háskólabíói laugardaginn 26. maí og hefst athöfnin kl. 10:45. Meira >>>
Skólagjöld næsta skólaárs 23. maí 2007 Greiðsluseðill vegna skólagjalda fyrir næsta skólaár hefur verið sendur út til nemenda í 1. - 3. bekk. Eindagi er 6. júní 2007. Greiðsla fyrir eindaga tryggir skólapáss næsta vetur. Meira >>>
MS fær styrk frá Menntamálaráðuneytinu 16. maí 2007 Menntaskólinn við Sund fékk úthlutað 500 þúsund króna styrk frá Menntamálaráðuneytinu til verkefnisins: Sjálfsmat skóla, rannsókn á eigin starfi sem er í umsjá konrektors, Hjördísar Þorgeirsdóttur. Um er að ræða áframhald á verkefni sem hófst haustið 2005 þá undir leiðsögn Hafþórs Guðjónssonar frá Kennaraháskóla Íslands. Tilgangur verkefnisins er... Meira >>>
Umsóknir um skólavist fyrir haustið 2007 14. maí 2007 Innritun nýnema fyrir næsta skólaár er hafin. Sótt er um námið rafrænt á vef Menntagáttar Inntökureglur á námsbrautir og viðmiðunarreglur skólans má finna með því að smella á tengilinn hér að neðan sem merktur er skólavist. Upplýsingar um námsbrautir sem í boði eru má finna með því að smella á Námið á stikunni hér fyrir... Meira >>>
Styrkur úr Forvarnasjóði 2. maí 2007 Menntaskólinn við Sund fékk úthlutað af Lýðheilsustofnun nú í annað sinn styrk úr Forvarnasjóði til þess að efla Foreldranet MS. Skólinn þakkar fyrir veittan stuðning við eflingu samstarfs skólans og foreldra á sviði forvarna. Meira >>>
Afhending námseinkunna í 4. bekk 1. maí 2007 Afhending námseinkunna í 4.bekk fer fram miðvikudaginn 2. maí kl. 11:45. 4. A stofa 21, 4. C stofa 22, 4. D stofa 23, 4. E stofa 24, 4. G stofa 25, 4. S stofa 26, 4. T stofa 27, 4. X stofa 28. Meira >>>
Nemendur í 3. G vinna til verðlauna í fyrirtækjasmiðju 30. apríl 2007 Fyrirtækið Scond Look sem nemendur í 3. G stofnuðu í fyrirtækjasmiðjunni í hagfræði á þessu skólaári fengu verðlaun frá Junior Achievement fyrir besta firmamerkið og/eða nafn. Second Look seldi notuð föt á netinu. Kennari þeirra er Ingibjörg Atladóttir Þormar og ráðgjafi þeirra í fyrirtækjasmiðjunni var Camilla Ósk Hákonardóttir frá Glitni. Fyrirtækjasmiðjan... Meira >>>
Síðustu kennsludagar og undirbúningur prófa 24. apríl 2007 Nú eru lok kennslutímans og nemendur eru farnir á fullt að undirbúa sig fyrir prófin sem hefjast í lok mánaðarins. Mikilvægt er fyrir nemendur að mæta vel og að nýta vel þessa síðustu kennsludaga til náms. Þá þurfa þeir að skipuleggja vel vinnuna á prófatímanum þannig að árangur verði sem bestur. Meira >>>
Skólakynning fyrir nemendur grunnskólanna 23. mars 2007 Kynningar á Menntaskólanum við Sund hefjast í dag, föstudaginn 23. mars kl. 13:15 þegar skólinn tekur á móti 85 grunnskólanemendum frá þremur grunnskólum. Kynningin fer fram í nýjum sal skólans á fyrstu hæð. Næstu daga munu koma um 700 grunnskólanemendur í kynningu en síðustu kynningar fyrir nemendur 10. bekkjar fara fram eftir páska. Meira >>>
Valgreinakynning 14. mars 2007 Valgreinakynning fyrir skólaárið 2007 - 2008 verður fimmtudaginn 15. mars kl. 11:15 - 11:55 í Þrísteini. Nemendur í 2. og 3. bekk eru eindregið hvattir til að mæta og kynna sér framboð valgreina og ræða við kennarana um námið. Búið er að dreifa kynningarbæklingum til nemenda í 2. og 3. bekk. Námslýsingarnar er einnig að finna á heimasíðu skólans og... Meira >>>
Vettvangsferð í Hvalfjörð 12. mars 2007 Kennarar í íslensku, jarðfræði og landafræði og nemendur í 1. bekk fóru í þverfaglega vettvangsferð í Hvalfjörð mánudaginn 12. mars. Farið var á söguslóðir Harðarsögu og jarðfræði og landafræði höfuðborgarsvæðisins og Hvalfjarðar skoðuð. Meira >>>
MS-ingar tóku þátt í forritunarkeppni framhaldsskólanna 12. mars 2007 Baldvin Þorsteinsson 3. A og Flóki Snorrason 3. X urðu í 4. sæti í delta flokki í forritunarkeppni framhaldsskólanna sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík þann 10. mars. Meira >>>
Lið MR sigraði lið MS í Gettu betur 9. mars 2007 Lið Menntaskólans í Reykjavík sigraði í kvöld lið Menntaskólans við Sund með 38 stigum gegn 17 í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Menntaskólinn við Sund óskar liði MR til hamingju með glæstan sigur. Meira >>>
Agaátak vikuna 12. - 16. mars 9. mars 2007 Efnt verður til agaátaks vikuna 12. – 16. mars til að skerpa á eftirfarandi reglu um vinnufrið í kennslustundum: Nemendur taki virkan þátt í náminu. Vikuna 12. – 16. mars munu kennarar leggja áherslu á að hrósa þeim nemendum sem eiga það sérstaklega skilið. Nöfn viðkomandi nemenda verða skráð á þar til gerð eyðublöð. Í vetur hefur reglulega verið... Meira >>>
Valgreinaval 2007 8. mars 2007 Nú hafa lýsingar á valgreinum sem í boði verða skólaárið 2007-2008 verið settar á heimasíðu MS undir Námið - Námsgeinar. Kynningarbæklingi verður einnig dreift til allra nemenda í 2. og 3. bekk. Valgreinakynning fer fram fimmtudaginn 15. mars kl. 11:15 - 11:55 í Þrísteini og eru nemendur eindregið hvattir til að mæta á hana. Valgreinaval fer fram... Meira >>>
Drög að próftöflu 3. mars 2007 Drög að próftöflu vorannar 2007 hafa verið lögð fram til kynningar og umsagnar. Drögin hafa verið hengd upp á nokkrum stöðum í skólanum. Athugasemdir við próftöfluna skulu berast til kennslustjóra fyrir 16. mars. Meira >>>
Sjálfsmat nemenda 27. febrúar 2007 Nú stendur yfir átaksverkefni í MS um sjálfsmat nemenda. Könnun er lögð fyrir alla nemendur skólans í MySchool og síðan verða niðurstöður hennar þ.e. hvers bekkjar og skólans í heild ræddar í hverjum bekk með umsjónarkennara bekkjarins. Nemendum gefst hér tækifæri til að íhuga eigin námsvenjur og viðhorf til námsins og skoða hvar þeir geta bætt... Meira >>>
Kjörsviðsval nemenda 19. febrúar 2007
Kjörsviðsval nemenda í 1. og 2. bekk fer fram vikuna 19. - 23. febrúar. Einnig þurfa nemendur í 1. bekk að staðfesta val sitt á þriðja tungumáli. Kynningu á kjörsviðum er að finna á heimasíðu MS. Glærusýning með kynningu brauta er hægra megin á forsíðu heimasíðunnar og nánari kynning er undir Námið - Námsbrautir. Meira >>>
Þemavika 2007 8. febrúar 2007 Mánudagur 12. febrúar Kennsla samkvæmt stundaskrá Þriðjudagur 13. febrúar 8:10 - 11:55 ... Meira >>>
Agaátak vikuna 29. janúar til 2. febrúar 27. janúar 2007 Efnt verður til agaátaks vikuna 29. janúar – 2. febrúar til að skerpa á hugtakinu ,,virðing” og sem er lykilhugtak í skólareglum MS. Þá viku munu kennarar vera sérstaklega vakandi fyrir því að nemendur sýni skólastarfinu virðingu og virði þær leikreglur sem skólinn starfar eftir. Meira >>>
Foreldrafundur í 1. bekk 22. janúar 2007 Fundur verður haldinn með foreldrum og forráðamönnum nemenda á 1. námsári þriðjudaginn 23. janúar 2007 k. 20:00. Þar fjallar rektor um skólasamfélagið í MS, sviðstjórar kynna kjörsvið innan námsbrauta og umsjónarkennarar funda með foreldrum hvers bekkjar. Meira >>>
Foreldrafundir í 1. bekk 15. janúar 2007 Forvarnarfulltrúi MS, Valgerður Halldórsdóttir námsráðgjafi og sviðstjóri fundar dagana 15. til 18. janúar með foreldrum einstakra bekkja á fyrsta námsári. Þetta er liður í viðleitni skólans til að efla samstarf skólans við foreldra og forráðamenn nemenda og stuðla að auknu samstarfi og samráði foreldranna innbyrðis í forvarnarskyni. Þann... Meira >>>
Breytingar á stundatöflum 12. janúar 2007 Nokkrar breytingar hefur þurft að gera á stundatöflum nemenda nú í fyrstu viku vorannar. Þessar breytingar varða eftirfarandi bekki: 1. E, 1. L, 2. R, 2. X, 3. G, 3. T og 4. C. Nýjar stundatöflur hafa verið settar á heimasíðuna. Meira >>>
Samkeppni um nafn á fyrirlestrarsal Menntaskólans við Sund 12. janúar 2007 Ákveðið hefur verið að efna til opinnar samkeppni meðal nemenda og starfsmanna Menntaskólans við Sund um nafn á fyrirlestrasal skólans sem verið er að byggja. Valin hefur verið dómnefnd skipuð fulltrúum starfsmanna og nemenda sem velja skal vinningstillöguna og verða vegleg verðlaun í boði fyrir besta nafnið. Komi fram fleiri en ein tillaga um vinningsnafnið... Meira >>>
Skólasókn á vorönn 11. janúar 2007 Nemendur eru minntir á þá grundvallarreglu að mæta stundvíslega í allar kennslustundir og skila vottorðum á skrifstofu skólans innan tveggja vikna frá því að veikindum lýkur. Að öðrum kosti verða veikindi ekki skráð í INNU. Uppgjörsdagur vegna úrskurðar í skólasóknarbann á vorönn er 16. febrúar. Nemendur fá reglulega viðvaranir í tölvupósti vegna... Meira >>>
Sigur í fyrstu umferð Gettu betur! 10. janúar 2007 Lið Menntaskólans við Sund sigraði Fjölbrautaskóla Snæfellinga með 21 stigi gegn 11 í fyrstu umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Meira >>>
Stundatöflur vorannar 2007 3. janúar 2007 Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 4. janúar. Stundatöflur vorannar eru komnar í Innu og á heimasíðu MS. Meira >>>
Afhending einkunna og prófsýning 18. desember 2006 Afhending einkunna og prófsýning verður miðvikudaginn 20. desember kl. 12:00. Nemendur eru hvattir til að mæta og nýta þetta tækifæri til að skoða mat á prófúrlausnum sínum. Meira >>>
Sjúkrapróf mánudaginn 18. desember 17. desember 2006 Sjúkrapróf verða haldin mánudaginn 18. desember kl. 8:15 og 10:45. Öll próf fara fram í Skálholti og í stofu 29 sem er sér-sérstofa. Flest próf hefjast klukkan 8: 15, en nokkur próf hefjast kl 10:45. Þær greinar sem prófað er úr klukkan 10:45 eru: Stærðfræði(allir árgangar), líffræði (allir árgangar), saga (allir árgangar), eðlisfræði (2. M... Meira >>>
Banni á notkun íþróttahúss Menntaskólans við Sund hefur verið aflétt 15. desember 2006 Umhverfissvið Reykjavíkurborgar hefur aflétt banni á notkun íþróttaaðstöðu Menntaskólans við Sund. Úttekt fór fram í dag og engar athugasemdir komu fram frá skoðunaraðilum við aðbúnað. Í bréfi frá þeim segir m.a. "Allar nauðsynlegar úrbætur hafa verið gerðar og er hér með aflétt banni á notkun íþróttasalarins". Meira >>>
Vegna frétta um lokun íþróttaaðstöðu skólans 13. desember 2006 Menntaskólinn við Sund hefur sent Umhverfissviði Reykjavíkurborgar bréf þar sem brugðist er við ákvörðun um tafarlausa lokun íþróttaaðstöðu skólans. Þar er ákvörðuninni harðlega mótmælt, enda er sú ákvörðun í engu samræmi við tilefnið. Jafnframt hefur vinnubrögðum skoðunaraðila verið mótmælt sem voru afar óvenjuleg svo ekki sé meira sagt. Þá var... Meira >>>
Íþróttaaðstöðu Menntaskólans við Sund lokað að kröfu Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar 12. desember 2006 Íþróttaaðstöðu Menntaskólans við Sund var lokað að kröfu Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar með bréfi dagsettu 11. desember. Krafa um lokun var sett fram í bréfi til skólans án þess að áður hafi verið gerðar athugasemdir við aðbúnað í íþróttasal. Yfirvöld skólans höfðu ekki hugmynd um að úttekt hafi farið fram þar sem engin tilkynning... Meira >>>
Bilun í tölvuþjóni 10. desember 2006 Vefur Menntaskólans við Sund lá niðri í um 18 klst vegna bilunar í tölvuþjóni sem sér um vefsamskipti. Notendur vefsins eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þeir hafa orðið fyrir vegna þessa. Vefurinn komst aftur í gagnið rétt fyrir kl. 17. Meira >>>
Veikindi á prófatíma 6. desember 2006 Nemendur eru hvattir til þess að tilkynna til skrifstofu veikindi á prófatíma og skila inn vottorði strax að veikindum loknum. Meira >>>
Agaátak vikuna 20. nóv. – 24. nóv. 17. nóvember 2006 Efnt verður til átaks vikuna 20. nóv. – 24. nóv. til að skerpa á eftirfarandi reglu um vinnufrið í kennslustundum: Nemendur taki virkan þátt í náminu. Meira >>>
Dagur íslenskrar tungu 15. nóvember 2006 Dagur íslenskrar tungu er fimmtudaginn 16. nóvember. Í tilefni dagsins verður hátíðardagskrá á sal skólans þar sem nemendur munu lesa upp frumsamin ljóð og sögur. Auk þessa mun kór skólans undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur flytja íslensk sönglög. Nemendur á fyrsta ári í MS lesa Mýrina, bók Arnalds Indriðasonar. Í tilefni dagsins ákvað skólinn... Meira >>>
Próftafla haustannar 2006 15. nóvember 2006 Próftafla haustannar 2006 er komin á vefinn. Nemendur eru hvattir til þess að kynna sér hana vel. Mikilvægt er að mæta tímalega í öll próf og nýta tímann vel. [sjá próftöfluna] Meira >>>
Nemendakönnun - Leggið lóð ykkar á vogarskálina! 15. nóvember 2006 Viðhorf nemenda til kennslu er einn mælikvarði af mörgum sem skólinn notar til að meta gæði þess starfs sem hér er unnið.
Góð þátttaka í nemendakönnun er ykkur í hag - Nýtið þetta tækifæri til að hafa áhrif á gæði skólastarfsins.
Meira >>>
Könnun á gæðum náms og kennslu 2. nóvember 2006 Nemendakönnun verður lögð fyrir í MySchool frá 3. - 14. nóvember 2006. Hér gefst öllum nemendum Menntaskólans við Sund kostur á að meta nám og kennslu í skólanum og legga þar með sitt af mörkum til að bæta skólastarfið. Spurningalistinn tekur til haustannar 2006. Nemendakönnun MS er nú í fyrsta skipti lögð fyrir í MySchool og er þessi hluti kerfisins... Meira >>>
Tveir nemendur MS komust áfram í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna 1. nóvember 2006 Helga Kristjana Bjarnadóttir 4. X og Kristleifur Guðjónsson 3. X komust áfram í stærðfræðikeppni framhaldsskólanna sem haldin var þann 17. október sl. Alls tóku 170 nemendur þátt í keppninni og af þeim komust 20 nemendur áfram í eldri aldurshópnum. Skólinn óskar þeim innilega til hamingju með góðan árangur og óskar þeim alls hins... Meira >>>
Agaátak vikuna 16. – 20. október 16. október 2006 Efnt verður til átaks í skólanum vikuna 16. - 20. október til að skerpa á eftirfarandi reglu um vinnufrið í kennslustundum:
-Nemendur stilli margmiðlunartæki sín á þögn eða hafi slökkt á þeim. Þess viku munu kennarar fylgjast sérstaklega vel með því hvort nemendur virði þessa reglu... Meira >>>
Haustfrí 13. október 2006 Haustfrí verður í MS föstudaginn 13. október og mánudaginn 16. október og skólinn því lokaður þá daga. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 17. október kl. 8:10 og skrifstofan opnar kl. 8:00 þann dag. Meira >>>
Stjórnendur sitja fyrir svörum 11. október 2006 Fimmtudaginn 12. október kl. 11:15-11:55 sitja stjórnendur og sviðstjórar fyrir svörum hjá nemendum í 3. og 4. bekk. Fundurinn verður haldinn í Skálholti. Nemendur eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að segja álit sitt á skólastarfinu og spyrja stjórnendur t.d. um námsframboðið, stúdentsprófin, skólareglur, aðstöðuna, ballmálin,... Meira >>>
Stöðumat í 1. bekk 11. október 2006 Vikuna 9.-12. október afhenda umsjónarkennarar í 1. bekk nemendum miðannarmat í öllum námsgreinum. Nemendur eru hvattir til að fara vandlega yfir matið og breyta vinnubrögðum sínum í þeim námsgreinum þar sem þörf er á því. Nemendur með matið Ó (ófullnægjandi) í fjórum námsgreinum eða fleiri eru sérstaklega hvattir til að leita til námsráðgjafa... Meira >>>
Nemendaferð til Danmerkur 9. október 2006 Hópur nemenda í MS sem eru á náttúrufræðibraut og lokið hafa lífrænni efnafræði hafa undanfarið verið að undirbúa sig undir námsferð til Danmerkur. Þeir verða í Danmörku með kennurum sínum í efnafræði dagana 8. til 13. október. Munu þeir sækja tíma í Frederiksborg Gymnasium auk þess sem þeir fá tækifæri á því að framkvæma tilraunir í... Meira >>>
Frumvarp til fjárlaga 2007 lagt fram 3. október 2006 Frumvarp til fjárlaga var lagt fram á fyrsta degi haustþings, mánudaginn 2. október, eins og venja er. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fjárframlög til framhaldsskóla greidd úr ríkissjóði verði árið 2007 15.570 milljónir króna. Framlög til Menntaskólann við Sund hækka um 6,9% frá fjárlögum síðasta árs sem svarar um það bil til... Meira >>>
Átak til að efla vinnuanda og aga í kennslustundum 25. september 2006 ... Meira >>>
Fundur með forráðamönnum 15. september 2006 Fundur verður haldinn með foreldrum og forráðamönnum nemenda á 1. ári þriðjudaginn 19. september. Fundurinn verður haldinn í skólanum og hefst kl. 20:00. Áætlað er að fundi ljúki ekki síðar en kl. 22:00. Bréf með dagskrá fundarins hefur verið sent út. Meira >>>
Breytingar meðal stjórnenda skólans 25. ágúst 2006 Umtalsverðar breytingar hafa orðið á skipan í stjórnunarstöður við skólann frá því í fyrra. Sigurrós Erlingsdóttir kennslustjóri er í leyfi þetta skólaár og á meðan gegnir Halla Kjartansdóttir stöðu kennslustjóra. Allar stöður faglegra stjórnenda voru auglýstar lausar til umsóknar síðastliðið vor. Sviðstjórum var fækkað úr fimm í þrjá og hafa... Meira >>>
Stundatöflur haustannar 2006 18. ágúst 2006 Stundatöflur haustannar 2006 eru komnar í Innu og á heimasíðu MS. Meira >>>
Skólasetning 9. ágúst 2006 Menntaskólinn við Sund verður settur miðvikudaginn 23. ágúst 2006 kl. 9:00. Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu strax að lokinni skólasetningu. Fundur með nýnemum verður haldinn þriðjudaginn 22. ágúst kl. 15:00.
Meira >>>
Skrifstofa skólans er lokuð til 9. ágúst 4. júlí 2006 Skrifstofa skólans er lokuð vegna sumarleyfa. Hún opnar á ný 9. ágúst næstkomandi. Meira >>>
Innritun nýnema er lokið 20. júní 2006 Innritun nýnema fyrir skólaárið 2006-2007 er lokið. Aðsókn að skólanum var mjög mikil og sóttu um mun fleiri en unnt var að taka inn. Alls hefja 224 nemendur nám á fyrsta ári. 214 koma beint upp úr 10. bekk og 10 nemendur setjast á ný á fyrsta námsár. Á fyrsta ári á málabraut hefja nám 28 nemendur, 84 á félagsfræðabraut og 112 á náttúrufræðibraut. Að... Meira >>>
Bókalistar 2006-2007 20. júní 2006 Bókalistar næsta skólaár (2006-2006) fyrir 1. til 4. bekk hafa verið settir á netið og einnig í Innu [meira...] Meira >>>
Brautskráning í Háskólabíói laugardaginn 27. maí 30. maí 2006 Brautskráning og skólaslit voru í Háskólabíói laugardaginn 27. maí . Að þessu sinni voru brautskráðir 112 nemendur og skiptust þeir þannig: Málabraut, hugvísindakjörsvið (M) 18 nemendur &nb... Meira >>>
Brautskráning stúdenta og skólaslit 24. maí 2006 Brautskráning stúdenta og skólaslit verða í Háskólabíói laugardaginn 27. maí kl. 16:00. Að lokinni athöfn verður myndataka fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands. rektor Meira >>>
Prófsýning í 4. bekk 22. maí 2006 Prófsýning fyrir nemendur á 4. ári verður í skólanum þriðjudaginn 23. maí kl. 12:00-13:00. Nemendur 4. bekkjar eru hvattir til þess að mæta og skoða vel prófúrlausnir sínar. rektor Meira >>>
Einkunnaafhending í 1. - 3. bekk 19. maí 2006 Einkunnaafhending og prófsýning í 1. - 3. bekk verður mánudaginn 22. maí kl. 12:00 - 14:00 Dagskrá: Kl. 12:00 Athöfn í Hálogalandi Kl. 12:30 Einkunnaafhending Kl. 12:45 Prófsýning Meira >>>
Innritun í MS 2006 8. maí 2006 Rafræn innritun 2006 Umsóknarfrestur um nám á haustönn 2006 er til mánudagsins 12. júní. Innritunin fer fram á netinu og hefst 15. maí. Rafrænt umsóknareyðublað og nauðsynlegar upplýsingar um innritunina er að finna á menntagatt.is. Þar eru einnig upplýsingar um nám í framhaldsskólum og námsframboð. Menntaskólinn... Meira >>>
Vorprófin eru hafin 26. apríl 2006 Vorprófin eru að hefjast. Nemendur nú skiptir máli hvernig þið vinnið. Til þess að geta gert sitt besta er hægt að styðjast við nokkrar einfaldar reglur: Kynnið ykkur vel prófareglurnar. Mætið tímanlega í öll próf (5-10 mín áður en próf á að hefjast). Nýtið alltaf allan prófatímann. Skipuleggið vel lestur í hverri námsgrein.... Meira >>>
Þungamiðja Reykjavíkur er hér! 24. apríl 2006 Kannað hefur verið hvar búsetu þungamiðja Reykjavíkur er og reyndist hún vera í byggingum Menntaskólans við Sund og Vogaskóla. Var þetta reiknað út með sama hætti og þegar búsetuþungamiðja höfuðborgarsvæðisins var fundin út frá staðsetningu heimilisfanga allra íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdasvið Reykjavíkur segir, að eftir að frétt um staðsetningu... Meira >>>
Nemandi MS varð í 2. sæti í örleikritasamkeppni Þjóðleikhússins 28. mars 2006 Ragnheiður Bárðardóttir, nemandi í 3. A varð í 2. sæti í örleikritasamkeppni Þjóðleikhússins í gærkvöldi með verk sitt Heimkomuna. Þetta var verkefni sem hún vann í íslensku hjá Steinunni Egilsdóttur kennara við MS. Hún hlaut í verðlaun leikhúsmiða og peningaverðlaun frá SPRON. Skólinn óskar Ragnheiði hjartanlega til hamingju með þennan árangur. Meira >>>
Valgreinar í boði 2006 - 2007 21. mars 2006 Námslýsingar valgreina sem í boði eru skólaárið 2006-2007 eru nú komnar á heimasíðu MS. Sjá undir Námið - Námsgreinar. Lista yfir valgreinar sem í boði eru er dreift til allra nemenda í 2. og 3. bekk og tvö eintök af valgreinalýsingum fara í hvern bekk. Valgreinakynning: fer fram fimmtudaginn 30. mars kl. 11.15 - 11.55 í Þrísteini. Valgreinaval: fer... Meira >>>
Menntaskólinn við Hamrahlíð sigrar Menntskólann við Sund í Gettu betur 17. mars 2006 MH sigraði MS í kvöld í fjórðungsúrslitum í spurningakeppni framhaldsskólanna með 27 stigum gegn 19. MS óskar MH til hamingju með sanngjarnan sigur og óskar þeim góðs gengis í keppninni. Meira >>>
Prófkvíðanámskeið 8. mars 2006 Prófkvíðanámskeið hefst mánudaginn 13. mars. Áhugasamir geta fengið upplýsingar hjá námsráðgjöfum og á skrifstofu skólans Meira >>>
Menntaskólinn við Sund eignast norðurlandameistara í frjálsum íþróttum 6. mars 2006 Hafsteinn Óskarsson kennari við skólann varð um helgina norðurlandameistari öldunga í 1500 m hlaupi á glæsilegu Íslandsmeti, 4:24,96 mín. Jafnframt hlaut Hafsteinn á norðulandameistaramótinu silfurverðlaun í sínum flokki (45-49 ára) í 800 m hlaupi og setti í leiðinni Íslandsmet, 2:08,23 mín. Það er ljóst að Hafsteinn hefur svona frekar verið að flýta... Meira >>>
Verðlaunahafar í stærðfræðikeppninni 3. mars 2006 Eftirtaldir nemendur urðu í 10. efstu sætunum í sínum aldursflokki í stærðfræðikeppni Menntaskólans við Sund sem haldin var í febrúar 2006 Tíu efstu í 8. bekk ... Meira >>>
Próftafla vorannarprófa 28. febrúar 2006 Próftafla vorannar er tilbúin. Hana er að finna á töflum skólans og á heimasíðunni undir fellimyndinni „Námið“. Meira >>>
Vetrarfrí 16. febrúar 2006 Menntaskólinn við Sund verður lokaður föstudaginn 17. febrúar og mánudaginn 20. febrúar vegna vetrarfrís. Skrifstofan opnar aftur þriðjudaginn 21. febrúar kl. 8:00 Meira >>>
Nemanet - þróunarverkefni 30. janúar 2006 Nemanet - þróunarverkefni - Á vorönn 2006 tekur Menntaskólinn við Sund þátt í þróunarverkefni um heimanámskerfið Nemanet. Verkefnið er styrkt af menntamálaráðuneytinu og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Markmiðið með kerfinu er að veita aðhald og stuðning í heimanámi. Kerfið sem er aðgengilegt á Netinu býr yfir lausnum sem efla einbeitingu... Meira >>>
MS á móti MH í 3. umferð Gettu betur 25. janúar 2006 Dregið hefur verið um hvaða lið mætast í Sjónvarpinu í spurningakeppninni Gettu betur en næsta umferð keppninnar hefst 23. febrúar. Lið Menntaskólans við Sund mætir firnasterku liði Menntaskólans við Hamrahlíð fimmtudaginn 16. mars og verður viðureign þessara liða sú síðasta í þriðju umferð keppninnar. Eftirtalin lið mætast í næstu umferð: Fimmtudagur... Meira >>>
MS sigur í 2. umferð Gettu betur 24. janúar 2006 Menntaskólinn við Sund sigraði Fjölbrautaskólann í Garðabæ með 29 stigum gegn 27 stigum eftir æsispennandi keppni í annarri umferð í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Með þessum sigri er MS kominn í 8 liða úrslit í keppninni. Meira >>>
Bókmenntahátíð í MS 24. janúar 2006 Þriðjudagskvöldið 24. janúar að lokinni keppni í Gettu betur verður haldin bókmenntahátíð í Skálholti ( kjallari Þrísteins). Þar munu nokkur valinkunn skáld lesa úr verkum sínum hlustendum til yndis og unaðsauka og efla um leið menningarvitund vora. Hefst hátíðin kl 20:30. Þau sem fram koma eru:
Andri Snær Magnason Kristín Þóra Pétursdóttir Aldís... Meira >>>
Gettu betur 2. umferð 24. janúar 2006 Menntaskólinn við Sund keppir við Fjölbrautaskólann í Garðabæ þriðjudaginn 24. janúar í Gettu betur. Það lið sem sigrar er komið í 8 liða úrslit í keppninni. Meira >>>
Gettu betur 16. janúar 2006 Menntaskólinn við Sund sigraði lið Starfsmenntabrautinnar á Hvanneyri með 26 stigum gegn 6 í fyrri umferð á Rás 2 í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Meira >>>
Kennsla á vorönn 2006 2. janúar 2006 Kennsla vorannar hefst miðvikudaginn 4. janúar samkvæmt stundatöflu. Stundatöflur vorannar 2006 eru komnar á heimasíðu MS. Meira >>>
Menntaskólinn við Sund og Landsbanki Íslands undirrita samstarfssamning 22. desember 2005 Menntaskólinn við Sund og Landsbanki Íslands hafa undirritað samstarfssamning til næstu þriggja ára. Í samningnum sem undirritaður var í í nýju húsnæði Langholtsútibús bankans 21. desember sl. er meðal annars kveðið á um viðskipti aðila og aðkomu bankans að almennri fjármálafræðslu fyrir nemendur. Kveðið er á um þátttöku bankans í sérstökum verkefnum... Meira >>>
Lok haustannar 2005 20. desember 2005 Haustönn 2005 er lokið. Eftir athöfn á sal sem kennslustjóri skólans, Sigurrós Erlingsdóttir, stýrði fengu nemendur afhentar einkunnir sínar hjá umsjónarkennurum auk þess sem þeim bauðst að skoða prófúrlausnir sínar í einstökum námsgreinum. Í ræðu rektors á sal skólans kom fram að skólastarfið hafi að mestu gengið vel á haustönninni.... Meira >>>
Jólatónleikar kórs Menntaskólans við Sund 2. desember 2005 Kór Menntaskólans við Sund heldur sína árlegu jólatónleika sunnudaginn 4. desember kl. 17:00 í Langholtskirkju. Mætum öll í jólaskapi! Meira >>>
Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna 7. nóvember 2005 Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna var haldin þriðjudaginn 18. október 2005. Stærðfræðikeppninni er skipt í neðra stig (1. og 2. bekkur) og efra stig (3. og 4. bekkur). Að þessu sinni urðu tveir keppendur úr MS meðal 20 efstu á efra stigi, þeir Birgir Indriðason og Egill Tómasson, báðir nemendur í 4X. Úrslit eru tilkynnt sérstaklega fyrir... Meira >>>
Mikið óunnið í jafnréttismálum 23. október 2005 Kvennafrídagurinn er á morgun 24. október. Konur um allt land ætla að ganga út kl. 14:08 og leggja þannig áherslu á launamisréttið. Það eru liðin 30 ár frá því að konur flykktust á Lækjartorg til að taka þátt í fjölmennri baráttusamkomu. Þó margt hafi breyst síðan þá er óútskýrður launamunur enn til staðar. Enn er full ástæða... Meira >>>
Reglur um dansleikjahald 4. október 2005 Birtar hafa verið á vef skólans reglur um dansleikjahald þetta skólaár [meira...] Meira >>>
Stjórnendur sitja fyrir svörum 30. september 2005 Stjórnendur og sviðstjórar sitja fyrir svörum hjá nemendum í 3. og 4. bekk fimmtudaginn 6. október kl. 11:15 - 11:55 í Skálholti. Kjörið tækifæri fyrir nemendur til að spyrja um námið og skólastarfið t.d. um stúdentsprófin, framboð valgreina, samræmd stúdentspróf, húsnæðið og fleira. Meira >>>
Stærðfræði í fyrsta bekk - aðstoð við heimanám 22. september 2005 Nemendum í fyrsta bekk bjóðast stuðningstímar í stærðfræði í vetur. Tímarnir verða á laugardagsmorgnum. Gjald fyrir haustönn er 6.000 krónur og verða nemendur að greiða við skráningu. Skráningargjöld verða ekki endurgreidd. Stuðningstímarnir verða eftirfarandi laugardaga: Tími Stofa 11:30-12:30 3 17.... Meira >>>
Skráning í samræmd stúdentspróf 16. september 2005 Skráning í samræmd stúdentspróf á haustönn 2005 er frá 15. september til 15. október. Meira >>>
Brautskráning stúdenta 31. maí 2005 Föstudaginn 27. maí voru 115 nemendur brautskráðir frá skólanum. Brautskráningin fór fram í Borgarleikhúsinu. Skúli Þór Magnússon kennari og ljósmyndari tók myndir af athöfninni og er myndirnar að finna hér á síðunni undir valmyndinni Skólinn - Brautskráningar. Meira >>>
Niðurstöður nemendamats á vorönn 2005 25. maí 2005 Hluti af sjálfsmati í Menntaskólanum við Sund er að leggja fyrir nemendur könnun þar sem spurt er um kennara, kennslu og gæði hennar. Nú hafa verið birtar heildarniðurstöður könnunarinnar sem lögð var fyrir síðastliðinn mars og einnig er sýndur samanburður við niðurstöður eldri könnunar. [...skoða niðurstöður] Meira >>>
Samningur við Betri lausnir um uppsetningu og rekstur á kennslukerfi 11. maí 2005 Menntaskólinn við Sund hefur gert samning við Betri lausnir ehf. um uppsetningu og rekstur á kennslukerfi fyrir skólann. Uppsetningu verður lokið í ágúst. Með þessum samningi opnast nýir möguleikar í skólanum varðandi upplýsingaflæði milli nemenda og kennara. Ný tækifæri verða til í námi og kennslu, sjálfsmati og utanumhaldi með einstökum námsgreinum... Meira >>>
Prófatíminn er hafinn 26. apríl 2005 Í dag 26. apríl er fyrsti prófadagur vorannar 2005. Ein prófalota er á hverjum degi og hefjast próf kl. 8:15. Til þess að allt gangi vel eru nemendur eru hvattir til að mæta tímanlega í öll próf og fylgja í einu og öllu prófareglum. [sjá reglur um próf og námskröfur] Meira >>>
Stjórnendur sitja fyrir svörum 13. apríl 2005 Stjórnendur og sviðstjórar sitja fyrir svörum hjá nemendum í 1. og 2. bekk t.d. um kjörsviðsval, valgreinar, félagslíf, skólasóknarreglur og styttingu náms til stúdentsprófs miðvikudaginn 13. apríl kl. 14:40 – 15:20 Í Skálholti. Við hvetjum nemendur til að nýta sér þetta tækifæri til að ræða við stjórnendur um málefni MS og skólamál almennt. ... Meira >>>
Áræði með ábyrgð 5. apríl 2005 Menntamálaráðuneytið hefur gefið út bæklinginn Áræði með ábyrgð . Þar er stefna ráðuneytisins um upplýsingatækni í menntun, menningu og vísindum 2005-2008 birt. Sjá nánar á vef menntamálaráðuneytisins [meira...] Meira >>>
GLEÐILEGA PÁSKA 22. mars 2005
Próftafla vorannar 2005 er komin á heimasíðu skólans. Opnunartími skrifstofu í páskafríi nemenda verður sem hér segir: Mánudaginn 21. mars og Þriðjudaginn 22. mars frá kl. 9:30-16:00 báða dagana. Þriðjudaginn 29. mars frá kl. 9:30-16:00. Frá og með miðvikudeginum 30. mars verður skrifstofa skólans opin frá 8:00 til 16:00. Meira >>>
Skóli á ferð til framtíðar 15. mars 2005 Skóli á ferð til framtíðar er titill á ræðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra sem hún hélt við setningu UT-ráðstefnunnar á Hótel Sögu 4. mars síðastliðinn. Eins og allir vita hafa undanfarið verið óvenjulega miklar umræður í þjóðfélaginu um menntamál. Helst hefur verið rætt um fyrirhugaða styttingu námstíma til stúdentsprófs, samanburð... Meira >>>
Gestir frá Danmörku í heimsókn 9. mars 2005 Nú um helgina koma nemendur úr dönskum framhaldsskóla í heimsókn í MS ásamt kennurum sínum. Þeir munu í næstu viku sækja tíma með okkar nemendum, fara á fyrirlestra um íslenska skólakerfið og síðast en ekki síst keppa við nemendur MS í hinum ýmsu íþróttum. Tökum vel á móti frændum okkar. Meira >>>
Menntamálaráðherra á fundi í MS 1. mars 2005 Menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hélt í dag 1. mars fund í skólanum um styttingu námstíma til stúdentsprófs. Á fundinum voru auk ráðherra embættismenn úr Menntamálaráðuneytinu,... Meira >>>
MS kominn í undanúrslit í Gettu betur 9. febrúar 2005 Lið Menntaskólans við Sund sigraði lið Framhaldsskólans á Laugum í jafnri keppni í 8 liða úrslitum í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur. Lið skólans er því komið í undanúrslit en ekki verður ljóst hverjir mótherjarnir verða í næstu umferð fyrr en öðrum keppnum í þessari umferð er lokið. Bæði liðin í kvöld eiga hrós skilið fyrir góða og drengilega... Meira >>>
Gettu betur 6. febrúar 2005 Menntaskólinn við Sund og Framhaldsskólinn að Laugum keppa í beinni útsendingu Sjónvarpsins miðvikudaginn 9. febrúar kl. 20:00 í Hálogalandi, íþróttasal Menntaskólans við Sund. Meira >>>
Sigur MS í annarri umferð Gettu betur 20. janúar 2005 Menntaskólinn við Sund sigraði Iðnskólann í Reykjavík með 20 stigum gegn 13 í annarri umferð í spurningakeppninni Gettu betur. Skólinn er því kominn í fjórðungsúrslit í keppninni sem er góður árangur. Annars var það markverðast í þessari umferð að tvö af sterkustu liðum keppninnar, Borgarholtsskóli og Menntaskólinn í Reykjavík, leiddu saman hesta sína... Meira >>>
Aðgerðir skólans til að bæta námsárangur 6. janúar 2005 Námsárangur á haustönn 2004 var svipaður og undanfarin þrjú til fjögur ár. Meðaleinkunn allra nemenda skólans var 6,4. Hlutfall þeirra sem ekki ná viðunandi aðaleinkunn hefur þó aukist lítillega milli ára og ljóst er að margir nemendur þurfa að breyta námsvenjum sínum ef þeir eiga að ná þeim árangri sem þeir stefna að. Skólinn hefur ákveðið... Meira >>>
Kennsla á vorönn 2005 30. desember 2004 Kennsla á vorönn 2005 hefst þriðjudaginn 4. janúar kl. 8:10 samkvæmt stundaskrá. Meira >>>
Endurtökupróf verða 7. janúar 30. desember 2004 Endurtökupróf verða haldin 7. janúar kl. 13:00-15:00 í jarðfræði og líffræði í 1. bekk málabrautar og félagsfræðabrautar, landafræði og félagsfræði í 1. bekk félagsfræðabrautar, hagfræði og stjórnmálafræði í 3. bekk félagsfræðikjörsviðs, rekstrarhagfræði í 3. bekk hagfræðikjörsviðs og bóklegum valgreinum í 3. og 4. bekk. Meira >>>
Opnun skrifstofu í desember 24. nóvember 2004 Opnun skrifstofu skólans í desember Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga frá 1. desember til og með 22. desember. Milli jóla og nýárs verður skrifstofan opin sem hér segir: Mánudaginn 27. desember frá kl. 9:00-16:00 Þriðjudaginn 28. desember frá kl. 9:00-16:00 Miðvikudaginn 29. desember frá kl. 9:00-16:0... Meira >>>
Dagur íslenskrar tungu 16. nóvember 2004 Í dag, 16.nóvember, er Dagur íslenskrar tungu og þess vegna dagur þinn, dagur minn- dagur okkar allra. Jónasi Hallgrímssyni (f. 16.11.1807) skáldi og náttúrufræðingi hefði trúlega þótt sú hugmynd sérkennileg að helga einn dag á ári íslenskri tungu. Hann hefði viljað hafa þá fleiri. Hér við skólann eru ýmsir kennarar sem fara iðulega yfir í garð... Meira >>>
Brotist inn í MS og tölvuskjám stolið 8. nóvember 2004 Brotist var inn í skólann nú um helgina og stolið 16 nýjum tölvuskjám af gerðinni IBM. Þeir sem geta gefið upplýsingar sem gætu leitt til þess að málið verði upplýst eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu skólans sem fyrst, sími: 5807300, netfang: msund@msund.is. Skjáirnir sem um er að ræða eru: 4 stk. af IBM 15" L150 TFT svartur... Meira >>>
Drög að próftöflu haustannar 2004 22. október 2004 Drög að próftöflu haustannar 2004 voru afgreidd af skólaráði MS þann 14. október og hafa nú verið sett upp á auglýsingatöflur skólans. Vinsamlegast sendið skriflegar athugasemdir fyrir 28. október til Sigurrósar Erlingsdóttur, kennslustjóra eða fulltrúa nemenda í skólaráði. Þeir eru Dagný Björk Kristjánsdóttir 4. B, Hinrik Örn Hinriksson 3. A og Kristín... Meira >>>
Þverfaglegt þemaverkefni í árshátíðarviku 2005 7. október 2004 Inngangur: Í árshátíðarvikunni 2005 þ.e.14. – 17. febrúar verður hefðbundið skólastarf brotið upp í fjóra daga og nemendur og kennarar vinna saman að þverfaglegu verkefni. Í tilefni af 35 ára afmæli skólans verður þemað Menntaskólinn við Sund í fortíð, nútíð og framtíð. Markmið:
auka fjölbreytni í skólastarfi efla þverfagleg vinnubrögð auka... Meira >>>
Samræmd próf 28. september 2004 Samkvæmt reglugerð um fyrirkomulag og framkvæmd samræmdra stúdentsprófa í framhaldsskólum nr. 196 frá 2003 er nemendum skylt að þreyta tvö samræmd stúdentspróf af þremur þ.e. í íslensku, ensku og stærðfræði. Samræmt stúdentspróf í íslensku verður haldið fimmtudaginn 2. desember 2004 kl. 9:00 - 12:00. Skráning í prófið fer fram í gegnum... Meira >>>
Breytt námsskipan til stúdentsprófs 28. september 2004 Út er komin á vegum menntamálaráðuneytis skýrsla starfshópa og verkefnisstjórnar um breytta námsskipan til stúdentsprófs og aukna samfellu í námi. Í skýrslunni er fjallað um leiðir til þess að stytta námstíma til stúdentsprófs. Fjallað er sérstaklega um starfstíma grunn- og framhaldsskóla, skipan náms til stúdentsprófs, aðalnámskrár grunn- og framhaldsskóla,... Meira >>>
Umsóknir um jöfnunarstyrk 24. september 2004 Skólinn vill vekja athygli á að það hefur verið opnað fyrir skráningu umsókna um jöfnunarstyrk á www.lin.is, vegna skólaársins 2004-2005. Athygli er vakin á að umsóknarfrestur á haustönn er nú til 15. október ár hvert, sbr. breytingu með reglugerð nr. 760/2004. Meira >>>
Vel heppnaðir tónleikar Sankt Annæ Pigekor 24. september 2004 Stúlknakór Sankt Annæ Gymnasium í Kaupmannahöfn er í heimsókn hér á landi. Kórinn er einn þriggja kóra við þennan fræga söngskóla og hafa verið gefnir út margir geisladiskar með kórnum. Aðrir kórar við þennan skóla eru Københavns Drengekor og Sankt Annæ Gymnasiekor sem er einn af stærstu kórum í Evrópu. Meira >>>
Tónleikar stúlknakórs Sankt Annæs menntaskólans í Kaupmannahöfn 23. september 2004 Stúlknakór Sankt Annæs menntaskólans í Kaupmannahöfn heldur í hádeginu föstudaginn 24. september tónleika í Þrísteini. Tónleikarnir standa frá klukkan 11:50-12:20. Nemendur og starfsfólk skólans er hvatt til þess að mæta. kennslustjóri Meira >>>
Fundur með foreldrum/forráðamönnum nýnema 17. september 2004 Þriðjudaginn 21. september kl. 20:00 verður haldinn í skólanum fundur með foreldrum og forráðamönnum nýnema í Menntaskólanum við Sund. Tilgangur fundarins er að kynna skólann og starfið í vetur og svara fyrirspurnum. Þá gefst foreldrum/forráðamönnum kostur á að hitta umsjónarkennara barna sinna. Stjórnendur skólans og námsráðgjafar verða á staðnum. Dagskrá... Meira >>>
Frumvarp um breytingar á skólakerfinu 24. ágúst 2004 ... Meira >>>
Greiðsla á innritunargjöldum 1. júlí 2004 Þeir nemendur sem ekki hafa greitt innritunargjöldin fyrir næsta skólaár eru hvattir til þess að gera skil strax. Nemendur sem koma úr grunnskóla og fengið hafa bréf um skólavist í MS geta átt það á hættu að verða teknir af nemendaskrá skólans ef þeir hafa ekki staðfest skólavistina með greiðslu skólagjalda. ... Meira >>>
Svör til nýnema verða send út 21. júní 18. júní 2004 Svör við umsóknum nýnema um skólavist verða send frá skólanum mánudaginn 21. júní. Rektor Meira >>>
Myndir frá útskrift í Borgarleikhúsinu 1. júní 2004 Brautskráning stúdenta fór fram í Borgarleikhúsinu föstudaginn 28. maí. Myndir frá þessari athöfn hafa verið settar á vef skólans en þar má sjá hvar allir 134 nýstúdentarnir taka við prófskírteini sínu úr hendi rektors. Skoða myndirnar Meira >>>
Námsefni á endurtektarprófum í ensku i 1. og 3. bekk 27. maí 2004 Námsefni á endurtektarprófum í ensku í 1. og 3. bekk vorið 2004 1. bekkur: Texti vorannar og málfræði alls vetrarins, ekkert annað. 3. bekkur: Texti alls vetrarins, ekkert annað. Meira >>>
Námsefni til endurtektarprófa í íslensku vor 2004 27. maí 2004 Námsefni til endurtektarprófa í íslensku vorið 2004 Námsefni til endurtektarprófs í íslensku í 1. bekk Baldur Ragnarsson: Setningafræði (sbr. námsáætlun haustannar). Jón Kalman Stefánsson: Ýmislegt um risafurur og tímann. Egils saga (sbr. námsáætlun vorannar). Ritun. Í ritun er tekið tillit til stafsetningar og greinarmerkjas... Meira >>>
Brautskráning stúdenta og skólaslit 26. maí 2004 Brautskráning stúdenta og skólaslit Menntaskólans við Sund fer fram í Borgarleikhúsinu föstudaginn 28. maí. Hefst athöfnin klukkan 14. Meira >>>
Kennsla að loknu páskafríi 13. apríl 2004 Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 14. apríl kl. 8:10. Meira >>>
Opnunartímar skrifstofu i páskaleyfi 1. apríl 2004 Skrifstofa skólans verður opin mánudaginn 5. apríl frá kl. 8:00 til 16:00 og þriðjudaginn 6. apríl frá kl. 8:00 til 12:00. Skrifstofan opnar síðan aftur eftir páskaleyfi þriðjudaginn 13. apríl næstkomandi kl. 9:00. Meira >>>
Sveit frá MS sigrar á framhaldsskólamótinu í bridge 25. mars 2004 Sveit nemenda í MS (Böðvar) sigraði með miklum yfirburðum á framhaldskólamótinu í bridge. Sveitina skipuðu: Þorvaldur Guðjónsson, Ívar Baldvin Júlíusson, Magnús Björn Bragason, Grímur Freyr Kristinsson. Sveit MK varð í öðru sæti og sveit MH í því þriðja. Glæsilegur árangur hjá okkar fólki sem hefur verið í stífri þjálfun í vetur. Skólinn... Meira >>>
Húsnæðismál MS 20. mars 2004 Á vegum ríkisins og borgarinnar er unnið að undirbúningi fyrir viðbyggingu við skólann. Vinna við þarfagreiningu er farin af stað og verið er að undirbúa nýtt deiliskipulag fyrir byggingareitinn sem Menntaskólinn við Sund og Vogaskóli standa á. Meira >>>
Nýr vefur MS opnar á ný 19. mars 2004 Nýtt vefumsjónarkerfi Menntaskólans við Sund opnar á ný eftir nokkrar lagfæringar. Gerðar hafa verið nokkrar endurbætur á kerfinu og gögn sem skemmdust hafa verið lagfærð að hluta til. Meira >>>
Aðgangur að gagnasafni Morgunblaðsins 30. janúar 2004 Bókasafn Menntaskólans við Sund ásamt öðrum bókasöfnum í framhaldsskólum hefur samið um ótakmarkaðan aðgang að Gagnasafni Morgunblaðsins fyrir framhaldsskólana. Aðgangurinn að gagnasafninu fer í gengum lén (IP-tölu) skólans þannig að þessi aðgangur er ekki fyrir hendi utan skólans. Fara má beint í gegnum heimasíðu Mbl.... Meira >>>
Samstarf við Barnaheill 29. janúar 2004 Í vetur eru nemendur Menntaskólans við Sund í samstarfsverkefni við Barnaheill. Samstarfsverkefnið felur í sér að nemendur Menntaskólans við Sund sem eru um 730 talsins ætla að vinna einn dag í árshátíðarviku skólans sem er í febrúar. Sá peningur sem safnast fyrir vinnuna verður síðan afhendur fátækum börnum í Kambódíu í samvinnu við... Meira >>>
Nýtt vefumsjónarkerfi í MS 6. janúar 2004 Nýr vefur Menntaskólans við Sund byggir á nýju vefumsjónarkerfi, Baldr sem fyrrum nemandi við skólann, Guðmundur Hreiðarsson hefur hannað. Vefurinn sem er sérsmíðaður fyrir skólann keyrir á sérstökum gagnagrunni. Vonast er til að með tilkomu þessa nýja veftækis verði unnt að reka betri og öflugri vef, nemendum, starfsmönnum og öðrum til hagsbóta.... Meira >>>
Jöfnun námskostnaðar 8. október 2003 Sækir þú nám fjarri lögheimili og fjölskyldu? Kynntu þér reglur um námsstyrki og leiðbeiningar um skráningu umsóknar á vef Lánasjóðs íslenskra námsmanna (www.lin.is). Athygli er vakin á nýrri reglugerð nr. 692/2003. Sækja má um styrk á www.lin.is. Meira >>>
Stytting náms til stúdentsprófs 8. október 2003 Menntamálaráðuneytið hefur birt skýrslu um styttingu náms til stúdentsprófs. Þar er því lýst yfir að lokaundirbúningur að styttingu námsins væri hafinn. Meira >>>
Ríkið og menntamálaráðuneytið gera samning um húsnæðisúrræði 6. september 2003 Menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, og borgarstjórinn í Reykjavík, Þórólfur Árnason, undirrituðu í dag yfirlýsingu um samstarf ríkisins og Reykjavíkurborgar í húsnæðismálum framhaldsskóla í Reykjavík. Meira >>>
|